|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Laugardagur, 06. febrúar 2010 18:35 |
Vestfjarðarvíkingurinn sýndur á RÚV 2010
Þáttur um keppni aflraunamanna á Vestfjörðum síðastliðið sumar. Þar tókust sterkustu menn Íslands á við fjölbreyttar þrautir eins og gert hefur verið í Vestfjarðavíkingi í tæpa tvo áratugi. Leikur jötnanna berst víða um Vestfirði og þeir þreyta aflraunir sínar á Hólmavík, í Mjóafirði, á Súðavík, á Suðureyri, Þingeyri, Bolungarvík og Ísafirði.
Í þættinum er fylgst með átökunum, og ýmsu því sem fyrir augu ber á Vestfjörðum á meðan á keppninni stendur. Einnig er brugðið á leik með görpum, sem meðal annars flytja frumsamin ljóð.
Aflraunakeppnin Vestfjarðavíkingurinn var nú haldin í sautjánda sinn. Ellefu aflraunamenn mættu til leiks og vitnuðu um kynslóðaskipti í aflraunum hér á landi, níu þeirra 24 ára og yngri.
Umsjón og dagskrárgerð var í höndum Óskars Þórs Nikulássonar og Samúels Arnar Erlingssonar. Ekki missa af þessu ! En þarna er hægt að sjá Ljónið, Hafþór Júlíus á sinni fyrstu aflraunakeppni lenda í 2.sæti !
Sunnudaginn 7.febrúar 2010 kl 19.35
|