Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 23. september 2010 12:58

Stefán Sölvi segir frá úrslitunum 

Stefán Sölvi í Litháen
 
Fyrsta grein á öðrum keppnisdegi var 360kg viskýtunnu burður ( svipað frame carry og bændagöngu ) 2x20metra. Ég fór út nr 2 með Ervin Katona. Nick Best var þá búinn að setja tímann 33,3sek. Ég náði að klára brautina án þess að missa gripið á 33,6sek. Zydrunas hljóp með þetta á eitthvað yfir 26sek. Misha og Brian voru töluvert lengur eitthvað í kringum 40-50sek. Aðrir kláruðu ekki. Ég náði því 3sæti í þessari grein og góðum stigum.
 
Önnur grein var réttstöðulyfta með bíl. Var búið að mæla nákvæmlega átakið á stönginni 355kg á báðum bílum. Ég fór út annar, aftur á móti Katona og náði 5repsum. Z og Brian tóku 11reps. Misha 10, Best 9, Travis og Terry 8, Katona 7. Held ég hafi verið áttundi hér, var bara yfir Jason og Derek sem fékk krampa og gat ekki lyft nema einu sinni eða tvisvar.

Atlas steinatökin voru næst. Ég fór út annar á móti Terry Hollands sem var aðeins 13vikum frá aðgerð á bicep sliti. Ótrúlegt að hann hafi náð í úrslitin. Verð að hrósa honum enda eðal kappi. Ég kláraði seríuna sem var 110-120-140-165-185kg á 28 eitthvað sek.
Zydrunas var 2stigum á undan Brian. Því þurfti hann að vinna Zydrunas í steinunum með tvo menn á milli. En þótt hann hafi unnið mjög sannfærandi þá var Zydrunas mjög hraður líka, þó aðeins hægari en ég og lenti í 3ja sæti. Sem gaf honum nógu mörg stig til að verja titilinn. Ótrúleg barátta hjá Z, Brian og Misha. En þetta annað sæti hjá mér í steinunum ýtti mér upp fyrir Travis og náði ég því fjórða sæti í keppninni.
Get ekki sagt annað en að ég sé ánægður með það. Ég er búinn að læra mjög mikið í ár, bæði í keppnum og æfingum. Ég finn að ég á mjög mikið inni í bætingum í afli og úthaldi. Og ef ég kemst svona langt núna. Þá get ég ekki verið annað en bjartsýnn á framtíðina og markmiðin mín sem nálgast stöðugt :)