Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 16. október 2010 13:04

Stefán Sölvi Keppir í Tyrklandi


Stefán Sölvi á Sterkasti Maður Heims 2010
Ljósm. Jon Boyles

Stefán Sölvi "Jæja þá er næst síðasta mótið hjá mér á þessu ári núna á morgun sunnudaginn 17. október. Giant´s Live mótaröðin er mætt til Tyrklands með Zydrunas Savickas, Brian Shaw, Laurence Shalalaei, Richard Skog, Mark Felix, Ervin Katona, Stoyan Todorchev, Paul Prijol, Konstantin Ilin og mig að sjálfsögðu :) "

Keppt verður í 6 greinum.
1. Appolon öxull - max þyngd
2. Þraut - 150kg bændaganga og 130kg kútur
3. 200kg steypuhella á vegalengd
4. Bílaréttstöðulyfta með hliðarhandföngum ca. 360kg á reps
5. 150kg drumbur á reps
6. Atlas steinatök