|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 27. október 2010 12:38 |
|
Viking Gym Iceland á Akureyri ætlar að bjóða upp á ókeypis þjálfun fyrir stelpur sem hafa áhuga á að læra tæknina í drumbalyftu og réttstöðulyftu. Fyrsta æfingin er fimmtudaginn næstkomandi kl 19.30 en þá verður drumbalyftan tekin fyrir. Á föstudögum verður réttstaðan tekin kl 18.00. Þjálfunin er eins og áður segir ókeypis og verður alltaf leiðbeinandi á staðnum sem stýrir æfingunni. Eina sem þarf að gera er að mæta og hafa góða skapið með ;) Viking Gym er staðsett á Tryggvabraut 22 á Akureyri. 
|