|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Þriðjudagur, 23. nóvember 2010 16:30 |
|

Laugardaginn 18.desember næstkomandi ætlar Aflraunafélag Akureyrar og æfingarstöðin Viking Gym á Akureyri að standa fyrir Jóla-bekkpressumóti. Mótið fer fram í æfingarstöðinni Viking Gym og verður tímasetning auglýst síðar. Stelpur er hvattar til að skrá sig til keppni en Viking Gym hefur verið að veita stelpum sem hafa áhuga á Kraftlyftingum leiðsögn. Hægt er að skrá sig á mótið með því að senda tölvupóst á afa (hjá) aflraunir.net. Búnaður (einfaldur) er leyfilegur á mótinu keppt er eftir WPF reglugerðinni. Athugið að mótið átti fyrst að vera haldið 26.desember en hefur verið flýtt um viku.
|