|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Föstudagur, 02. september 2011 01:47 |
|
Keppnin um sterkasta mann suðurnesja er nú haldin í níunda skiptið og var fyrsta greinin haldin í dag (fimmtudag) en restin af keppninni fer fram á túninu á móts við Svarta pakkhúsið við Hafnargötu kl 17.00. Keppnisgreinar verða; Pressu medley, bóndaganga, super yoke og splunku nýjar gúmmíkúlur í lokin. Keppendur að þessu sinni eru; Hannes Þorsteinnsson, John Russel, Arngrímur Anton Ólafsson, Karl H Eysteinsson ,Sævar Jóhannsson, Einar Sigurjónsson og Þorvarður Ólafsson.
|