|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Fimmtudagur, 25. júní 2009 18:02 |
-105kg Sterkasti Maður Íslands - fleiri keppendur
Klaus Jensen |
Á laugardaginn næstkomandi verður haldin Sterkasti Maður Íslands keppni fyrir keppendur undir 105kg. Held að um 6 keppendur séu skráðir til leiks en það munu vera þeir Sturla Ólafsson, Daniel Sæmundsson, Stefán Björnsson, Hörður Páll Harðarson, Hörður Harðviður og Dhani Jones. Dhani Jones er bandarískur fótboltakappi sem er með þátt á Travel Channel sem heitir "Dhani Tackles the Globe" en í þáttunum ferðast hann um heiminn og tekur þátt í hinum ýmsu íþróttum. Hann hefur meðal annars ferðast til Tælands og keppt þar í Thai-boxi, spilað ruðning í Englandi, boxað í Kambódíu og nú er hann mættur til Íslands til að keppa í aflraunum. Mótið verður tekið upp og sýnt á Travel Channel. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta haft samband við Hjalta í síma 897-8626. Mótið hefst kl 13.00 í Fjölskyldugarðinum. Hörður Páll Harðarson
 Ljósm. Sunna Hlín | Sturla Ólafsson
 Ljósm. Sunna Hlín | Dhani Jones
 Ljósm.Alberto E. Rodriguez Getty Images North America | Daníel Sæmundsson
 Ljósm. Sunna Hlín | Hörður Harðviður
 Ljósm.Einkasafn | Stefán Björnsson |
Keppnisgreinarnar verða eftirfarandi: 1. Hönd yfir Hönd = Jeppi dreginn 2. Hleðsla: 6 áburðapokar um 40kg & Bændaganga 90kg 3. Pressa yfir höfuð: 35kg handlóð - 80kg Appallo öxull - 80kg Náttúrusteinn ) 4. Atlassteinar: 90kg upp í 140kg 5. Húsafellshella 172kg - Hver fer lengst |
|