Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 26. september 2009 22:50

Stefán Sölvi í 3.sæti í sínum riðli á WSM 2009

Fyrsta degi keppninnar Sterkast Maður Heims 2009 er nú lokið og er Stefán Sölvi í 3.sæti í sínum riðli ásamt 2 eða 3 öðrum keppendum. Stefán Sölvi var í 5.sæti í fyrstu greininni en hún samanstóð af því að draga keðjur, bera tunnur og hleðslugrein. Í trukkadrættinum var hann þriðji. Zydrunas Savickas (Litháen) og Brian Shaw (USA) eru í topp sætunum í riðli 2 sem Stefán er í. Á morgun fer fram réttstöðulyfta, Fingal’s Fingers og Car Walk.