Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 28. september 2009 12:01

WSM 2009: Stefán Sölvi heldur 4.sætinu

Stefán Sölvi varð í 4.sæti í fingals fingers og er því ennþá í 4 sæti í heild. Hann er búin að æla í allan gærdag og í morgun þannig hann ætlaði bar að leggja sig og safna orku. Hann er víst ekki eini keppandinn sem er ælandi. Hann á möguleika á 3.sæti á morgun en þá fer fram kútakast og steinatök. Ef hann nær 3.sæti gæti hann verið valinn áfram sem varamaður í úrslitunum.