Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Sunnudagur, 31. janúar 2010 22:18

Draumurinn orðinn að veruleika ! :)

Lítill draumur sem byrjaði í bílskúrnum heima í júlí 2007 varð aðeins stærri þegar mikil eftirspurn varð eftir fæðurbótaefnum sem við vorum að flytja inn og því þurftum að opna litla verslun, Perform.is, í Kópavogi.

Nú er litla verslunin okkar algjörlega búin að sprengja utan af sér! Við höfum því innréttað og hannað stærri verslun á sama stað. (Holtasmára 1: Hurðin við hliðin á)

Af þessu tilefni viljum við, Sunna Hlín & Dóri, bjóða ykkur að samgleðjast með okkur og koma að skoða nýju verslunina okkar á Opnunarkvöldinu, mánudaginn 1.febrúar frá kl 17.00-20.00.
 
Við ætlum að hafa ALLAR vörur á afslætti og ýmsar vörur á sérstöku opnunartilboði.

Allir sem koma í heimsókn geta skráð sig í pott og í lok kvöldsins verða nokkrir heppnir gestir dregnir út og fá fríar vörur frá okkur ( haft verður samband við vinningshafa )

Léttar veitingar verða í boði og öllum boðið að smakka hina ýmsu próteinshake-a, og fleira.


Er Maggi Bess sá eini með 50cm
byssur?


Skráning í 50cm Bicep klúbbinn verður á staðnum en allir sem eru með 50cm bicep fá frían prótein dunk ! :) Á staðnum verða einnig fitnesskeppendur sem hægt verður að spyrja spjörunum úr. Hlökkum til að sjá ykkur ! :)
 
Kveðja Sunna Hlín & Dóri í Perform