Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 18. maí 2010 10:36

Katrín Eva á leið til Serbíu

Katrín Eva sem hóf feril sinn í fitness fyrir aðeins rúmu ári síðan er nú á leið á Evrópumeistarmót IFBB sem haldið verður í Serbíu þann 27.maí næstkomandi. Katrín Eva opnaði nýverið heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með því hvað hún er að gera og lesa greinar. Hér fyrir neðan er svo stutt ágrip af fitness ferlinum hennar sem finna má á heimasíðunni www.KatrinEva.is

 
 
ÁRIÐ 2009
  • Fyrsta mótið mitt var í Osló, það má því segja að Maggi hafi hent mér beint í djúpu laugina. Þar var markmiðið mitt að gera mig ekki að fífli því flestir sem ég þekki reyndu að tala mig af því að keppa. Ég komst í úrslit á mótinu og endaði svo í þriðja sæti. Mér leið eins og ég hefði orðið heimsmeistari.
  • Helgina þar á eftir keppti ég svo heima og varð Íslandsmeistari, en það var mitt fyrsta mót hérlendis.  Þarna hafði mjög svo fjarlægur draumur ræst !
  • Og helgina þar á eftir keppti ég í Danmörku á mjög sterku móti sem heitir Loaded Cup og varð í fjórða sæti. Ég tel það vera mjög góðan árangur miðað við að þá var ég orðin þreytt á því að kötta og át súkkulaði í staðin fyrir kjúkling. Það geri ég aldrei aftur... hehehe.  Engu að síður var frábært að keppa á þessu móti. Við hvert mót sem maður keppir á öðlast maður reynslu, sem nýtist manni seinna meir.
  • Ég byrjaði því framar vonum í þessu sporti en ég er líka með þann besta á Norðurlöndunum og 31 faldan Íslandsmeistara í vaxtarrækt mér við hlið. Magnús Bess er maður sem hefur endalausa trú á mér og rífur mig upp þegar ég fer að efast. Tveir eru alltaf sterkari en einn :)
  • Svo tók ég nýjan vinkil í sportinu og mætti í Smáralindina um haustið á móti 20 stelpum að keppa um titilinn Sterkasta kona Íslands, þar kom ég sjálfri mér mjög á óvart og reif til dæmis upp 150 kg í Réttstöðulyftu og vann 3 greinar af 6 og endaði í þriðja sæti. Það þótti sérstakt því ég er bara 60 kg sjálf.
  • Ég tók svo kött í 3 vikur og mætti á Bikarmótið í fitness í nóvember og endaði í öðru sæti. Þegar þú hefur verið í fyrsta sæti, þá er þetta ekki bikar sem þig langar í. Þess vegna spýttti ég í lófana og hét mér því að ná mér í fyrsta sætið aftur. Ég æfði af krafti, borðaði hollustu út í einn og hugsaði aftur og aftur tilfinninguna sem fylgdi því að vinna og sá það fyrir mér, Ég var í raun stórhættuleg í vinnunni því ég vinn við að hella áli og þú þarft því að hafa hugann við það sem þú ert að gera en ekki á sviði sprangandi um á bikiníi :)
ÁRIÐ 2010
  • Ég uppskar eftir því. Í byrjun mars héldum við til Bandaríkjanna, nánar tiltekið til Columbus í Ohio til að taka þátt á einu stærsta Vaxtarræktar- og fitness móti sem haldið er í heiminum.. Það heitir Arnold Classic og er kennt við hinn fræga Arnold schwarzenegger. Ég keppti þar í Figure F í áhugamannaflokknum og mér til mikillar hamingju þá stóð ég uppi sem sigurvegari. Að vinna á svona stóru móti er vissulega hvatning til að halda áfram að gera góða hluti. Ég slæ ekki slöku við á meðan áhuginn er til staðar sem og aginn sem hafa þarf til að byggja upp flottan skrokk.
  • Nú er stefnan tekin á Evrópumót sem haldið er í Serbíu, þar er ég að renna blint í sjóinn því samkvæmt myndum sem ég hef verið að skoða þá eru þær töluvert harðari og kjötaðri en ég sækist eftir að vera. Það er stefna mín að mæta í því formi sem mér finnst ég vera súper flott í og vonandi dugar það til sigurs ;)  Undirbúningur gengur vel og ég er bjartsýn á enn meiri bætingar =)

UNDIRBÚNINGUR FYRIR MÓT

  • Undirbúningur stendur yfir allt árið. Ég lyfti mjög þungt og æfi sex daga vikunnar. Ég er í formi allt árið og hleypi mér lítið upp, enda finnst mér lítið spennandi að vera bara flott einu sinni á ári. Þess vegna verður undirbúningurinn fyrir mót auðveldur, því ég þarf að breyta svo litlu. Við erum bara aðeins harðari í matarræðinu og sleppum sósum og slíku og bætum brennslu við æfingarnar.
  • Fyrir mig persónulega er þetta sport erfiðast fyrir hausinn.
  • Minn stærsti veikleiki er að höndla gagnrýni og þarna er ég að labba uppá svið og gefa færi á því að allir gagnrýni mig.
  • En kosturinn við þetta er að þarna er þörf á sjálfsaga og ég er smátt og smátt að læra hann. Hann getur maður nýtt sér á fleiri sviðum í lífinu og það er stefnan.