|
Föstudagur, 12. september 2008 00:00 |
Fréttatilkynning Icefitness ehf Mosfellsbær 12.09.2008 Ákveðið hefur verið að fella niður Íslandsmót Icefitness 2008.Fyrirtækið Icefitness ehf er að endurskoða sinn rekstur og marka nýja stefnu.Ef þetta mót verður haldið síðar þá munum við láta vita með góðum fyrirvara.Við viljum biðja þá keppendur sem ætluðu að keppa á þessu Íslandsmóti velvirðingar á þessu. Gátum því miður ekki gefið þetta út fyrr. Eins viljum við þakka öllum okkar frábæru keppendum og samstarfsfólki til margra ára gott og skemmtilegt samstarf.
Fyrir hönd Icefitness ehf, Andrés Guðmundsson og Lára B. Helgadóttir
|