|
Föstudagur, 17. október 2008 19:41 |
Icefitness
Icefitness verður haldið þann 15. nóvember klukkan 16:00 í íþróttahúsinu í Keflavík (Sunnubraut). Samanburður fer fram fimmtudagskvöldið 13. nóvember klukkan 20:00, staðsetning kemur fram síðar. Nokkuð góð skráning er bæði í karla og kvennaflokki. Lokadagur fyrir skráningar er mánudagurinn 20. október á miðnætti. Því miður töpuðust einhverjar skráningar vegna þess að tölva hrundi sem hélt utan um skráningar. Þeir sem nú þegar hafa skráð sig eru beðnir um að senda staðfestingu á skráningu á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Í skráningu er gott að komi fram nafn, aldur, starf, hæð, þyngd, íþróttarlegur bakgrunnur og hvort viðkomandi hefur keppt í fittness áður.
|