Sunnudagur, 26. október 2008 22:33

Heiðrún á Plaggati



Á plaggati sem auglýsir landskeppni Spánar prýðir engin önnur en hin íslenska Heiðrún Sigurðardóttir en hún hefur undanfarin ár keppt fyrir Íslands hönd á Heimsmeistaramóti IFBB í fitness og vaxtarrækt sem haldið er á Spáni. Myndin var tekin  þegar Heiðrún var í myndatöku fyrir spænska Muscle and Fitness á Heimsmeistaramótinu í fyrra en hún hefur verið vinsæl meðal ljósmyndara þarna úti. Því miður veiktist Heiðrún stuttu fyrir mót og gekk því ekki eins vel en hún hafði verið að undirbúa sig fyrir móti frá því í sumar.