Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 10. júlí 2009 14:48

Íslandsmót Icefitness 2009 

Íslandsmót Icefitness verður haldið á þeim dýrðar degi 14.nóvember næstkomandi (afmælisdagurinn minn hehe) Vikar í líkamsræktarstöðinni Lífstíl í Keflavík mun sjá um mótið líkt og í fyrra.

Í fyrsta sinn ætlar Icefitness að bjóða upp á Unglingamót samhliða Íslandsmótinu. Stelpur á aldrinum 16-17ára og strákar 16-19 ára. Ekki verða gerðar sömu kröfur á skurð eins og í eldri flokknum og mun hann gilda 20%.

Nánari upplýsingar um Unglingamótið og staðsetning mótanna koma á netið í byrjun ágúst.

Hér til hliðar er grein úr Séð & Heyrt sem ég skannaði inn en þetta birtist þar 15.-21.nóvember 2007 smellið á myndina til að sjá í fullri stærð. Setti einnig inn viðtal við Önnu Bellu sem birtist í sama blaði hér. (Smellið á myndirnar til að lesa viðtalið)
 
 
 
 
 

Síðast uppfært: Föstudagur, 10. júlí 2009 15:30