Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 19. október 2009 16:15

Icefitness 2009: Skráning hafin

Eva Sveinsdóttir
Eva sigurvegari 2007-2008
Ljósm.Sunna Hlín


Skráning er hafin í Icefitness sem fer fram 12. og 14.nóvember. Samanburður fer fram fimmtudaginn 12.nóvember og keppninn sjálf fer fram á laugardeginum 14. nóvember í Reykjanesbæ.

Keppninn verður með svipuðu  sniði og 2008 í opnum flokki en einnig verður keppt í unglingaflokki, 16-17 ára í kvenna flokki og 16-19ára í karlaflokki. Í unglingaflokki er vægi samanburðar minna eða 20% og kröfur um skurð eru mildari.

Keppnisgreinar í kvenna flokki eru armbeygjur, fitness greip, hraðaþraut og samanburður. Keppnisgreinar í karla flokki eru upphífur, dýfur hraðaþraut og samanburður.

 

Sævar Ingi
Sævar sigurvegari 2007-08
Ljósm.Sunna Hlín

Keppninn verður tekinn upp og gerður verður glæsilegur sjónvarpsþáttur um mótið sem sýndur verður á Sjónvarpinu, RÚV, á besta tíma.
Það stefnir í hörku spennandi keppn.

Skráningar fara fram á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og lýkur 5.nóvember.

Ef einhverjar spurningar eru hikið ekki við að hafa samband við Vikar í 899 0501

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. október 2009 10:01