Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 17. nóvember 2009 15:37

FitKid 2009



Þann 1-5 október var haldið Evrópumót í FitKid en mótið fór fram í Ungverjalandi. Þrír keppendur fóru fyrir Íslands hönd; þær Sunna Lind Ingibergsdóttir 10 ára), Edda Rún Sigurðardóttir (14 ára) og Cristina Isabel Agueda (8 ára). Þær æfa allar FitKid hjá Fimleikafélaginu Björk.

Þetta var ótrúlega skemmtileg 5 daga ferð, allir keppendur á mótinu voru saman á 4 stjörnu hóteli  svo að það skapaðist mikill  vinskapur á milli allra keppendanna. Einn dagur var tekinn í ferð á hestabúgarð þar sem settar voru upp frábærar hestasýningar fyrir hópinn. Þetta var gríðarlega sterkt mót og stóðu stelpurnar sig mjög vel og voru Íslandi til mikils sóma. Sunna Lind náði sér í 4.sætið í sínum flokk, Cristina Isabel í 5.sætið í sínum flokk  og Edda Rún það 15.í flokknum sínum. Þetta var mikið ævintýri fyrir stelpurnar og ætla þær allar að stefna á fleiri erlend mót.

 

Fitkid er frábær íþrótt fyrir krakka á aldrinum 5-18 ára, síðan þegar þú ert orðinn 18 ára færist þú upp í FitWoman og bætist þá við að koma fram í síðkjól og bikiní.  Í Fitkid er keppt í svokallaðri rútinu, það felur í sér að gera dans á 10x10 gólfi, það má vera hvaða lag sem er og hvernig dansstíll sem er, inn í dansinum þurfa að vera 2skylduæfingar  úr hverjum flokk, flokkarnir skiptast í þrekæfingar, liðleikaæfingar, fimleikaæfingar, og hopp þannig að samtals þarf æfingin að innihalda 8 móment og svo þarf að framkvæma eina seríu sem inniheldur 2 fimleikaæfingar tengdar saman. Skylduæfingarnar eru valdar úr æfingarbók en þar eru allar æfingar sem hafa gildi í FitKid flokkaðar í ABCD þar sem D hefur mesta erfiðleikagildið, og  það er það sem gerir þessa íþrótt svo frábæra að hver sem er getur verið í henni, maður þarf hvorki að hafa fimleika né íþróttagrunn og getur byrjað á hvaða aldri sem er.

Fitkid er kennt eins og er, í  Fimleikafélaginu Björk  og á Selfossi  og mun að öllum líkindum byrja í Reykjavík og á fleiri stöðum eftir áramót. Allar nánari upplýsingar um FitKid er hægt að fá með því að hafa samband við Eddu Dögg Ingibergsdóttir, yfirþjálfara Fitkid. Netfang:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  

http://www.fitkid.is

http://www.fitnesssport.org/emain.html