|
Intersport Þrekmótaröðinni 2010 mun ljúka með fjórða og síðasta móti ársins í Vestmannaeyjum í 30.október, en þá mun í fyrsta skiptið verða haldin „5x5 Áskorunin“.
Það eru fjögur mót sem mynda Intersport Þrekmótaröðina, sem nú er haldin annað árið í röð, en þau eru: Lífsstíls Meistarinn, CrossFit Leikarnir, Boot Camp Keppnin og 5x5 Áskorunin. Stjórn mótaraðarinnar er skipuð fulltrúum frá CrossFit Sport, CrossFit Reykjavík, Lífsstíl (Keflavík), Bootcamp auk tveggja fulltrúa keppenda. Mótin eiga það sameiginlegt að reyna öll á þrek, styrk, þol og snerpu keppenda. Öllum er frjálst að keppa í Intersport Þrekmótaröðinni, óháð æfingastöð, íþróttabakgrunni eða reynslu og er því um að ræða jákvæða áskorun sem allir við góða heilsu og heilan skrokk geta tekið þátt í.
5x5 Áskorunin er alveg ný keppni og byggir á nýrri hugmynd alveg frá grunni. Keppnin byggist upp á 5 boxum (hólfum) sem öll eru skipulögð af sitthvorri æfingastöðinni. Boxin fimm eru: #1 – Lífsstíll : sprettir, bekkjahopp og kviðkreppur #2 – Kettlebells Iceland : snörun, sveiflur og blönduð æfing #3 – Bootcamp : armbeygjur, froskar og sandpokahlaup #4 – CrossFit Reykjavík : lóðalyftur upp fyrir haus og froskar (burpees) #5 – CrossFit Sport : róður í vél og hnébeygjur
Erfiðleikastig keppninnar miðað að því að allir sem æfa reglulega og eru heilir heilsu eiga að ráða við brautina. Stigagjöf byggist á því hversu mörgum hringum af æfingum keppandi nær að framkvæma á 4 mínútum. Milli boxa er svo einnar mínútu hvíldarpása sem keppandi nýtir til að ná niður púlsinum og koma sér fyrir í næsta boxi. Brautin tekur því 25 mínútur fyrir alla keppendur.
Keppt verður í einstaklingskeppni og liðakeppni karla og kvenna í tveimur aldursflokkum, undir 39 ára og 39+. Einnig er keppt í parakeppni þar sem karl og kona keppa saman. Þar sem keppnin fer fram á Hrekkjavöku-helginni verða einnig gefin sérstök verðlaun fyrir flottustu búningana. Keppnin mun fara fram í Íþróttahöll Vestmannaeyja.
Að keppni lokinni verður haldið veglegt lokahóf Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010, þar sem verðlaun verða veitt sigurvegurum mótaraðarinnar, sem munu hljóta titlana „Hraustasti maður Íslands“ og „Hraustasta kona Íslands“.
Sigurvegarar Þrekmótaraðarinnar 2009 voru Sveinbjörn Sveinbjörnsson og Annie Mist Þórisdóttir. Þess má geta að Annie hampaði einnig 2.sæti á CrossFit Games í Kaliforníu nú í sumar, þar sem hún keppti á móti hraustustu konum heims um titilinn "Fittest on Earth". Það er því nokkuð ljóst að við Íslendingar stöndum mjög framarlega í þessum geira og mótaröð sem þessi því mjög tímabær.
Allar nánari upplýsingar má finna á heimasíðu mótaraðarinnar, www.threkmot.is. Skráningu lýkur kl.23:59, þriðjudaginn 26.október.
|