Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 07. október 2009 15:41

Aðstoð við Prófíla keppenda

Jæja nú langar mig að halda áfram með Profíla-dálkinn þar sem mjög erfitt er að elta uppi alla þessa frábæru keppendur langar mig að birta hér standard spurningalista og biðja ykkur keppendur að fylla það út(ekki þarf að svara öllum spurningunum) og senda mér ásamt myndum svo við getum saman átt stóran gagnabanka yfir keppendur sem mun eflaust nýtast okkur öllum og verða ómetanlegur í framtíðinni.  Þeir sem eru nú þegar með Prófíl endilega skoðið hann og athugið hvort að það sé eitthvað sem þið viljið breyta eða bæta við, t.d bæta við ferilskránna eða setja inn styrktaraðila. Þeir sem hættir eru að keppa endilega sendið líka inn upplýsingar um ykkur, fyrri mót og myndir :)

Með von um góð viðbrögð við hjálp um að styrkja sportin okkar

Kveðja 

Sunna Hlín
svör sendist á: sunnahlingunnlaugs (hjá) gmail.com

ps.smellið á lesa nánar til að sjá spurningarnar

 

  1. Nafn:
  2. Aldur:
  3. Hæð:
  4. Off-season þyngd og keppnisþyngd ?
  5. Styrktaraðilar:
  6. Ferilskrá:
  7. Staður:
  8. Æfingastöð:
  9. Æfingafélagi ?
  10. Atvinna ?
  11. Áhugamál ?
  12. Hvernig kviknaði áhuginn?
  13. Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Hvernig datt þér í hug að fara keppa ? Varstu strax heillaður af fitnessinu/vaxtarræktinni/kraftlyftingunum/aflraununum?
  14. Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja?
  15. En í dag ?
  16. Hver eru framtíðarplönin ? Ætlarðu að keppa aftur ? 
  17. Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingar/aflraunir á Íslandi ?
  18. Uppáhaldsæfing og líkamspartur ?
  19. Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni?
  20. Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í  vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingum/aflraunum?
  21. Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Fæðubótaefni í uppáhaldi:
  22. Æfingarvikan: (on eða off season)
  23. Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ?
  24. Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
  25. Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness/aflraunir/kraftlyftingar?
  26. Hver eru algengustu byrjendamistökin ?
  27. Hvað þarf til til þess að ná árangri ?
  28. Ráð til nýliða  ?

 

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 07. október 2009 15:46