Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 16. júlí 2010 15:05

Ísland í öðru sæti á smáþjóðaleikum


Sigurður, Hrannar, Gísli, Erlendur og Guðmundur Helgason
fararastjóri í fanginu á strákunum

Smáþjóðaleikarnir í ólympískum lyftingum 2010 voru haldnir í Kýpur um síðustu helgi. Ísland sendi fjögurra manna lið, sem náði öðru sæti á mótinu. Aðrar þjóðir sem tóku þátt voru Kýpur, Malta, Luxemburg og San Marínó. Lið Kýpurbúa sigraði í leikunum og Luxemburg varð í þriðja sæti.
 
Smellið á Nánar

 
Keppni þessi var einnig hluti af stærri keppni, Rene deVille Open, en þar kepptu, auk þeirra liða sem þátt tóku í smáþjóðaleikunum, lið Grikklands, Englands, Skotlands og Wales. Íslendingar hrepptu þriðja sæti í þeirri keppni. Í fyrsta og öðru sæti voru Grikkir og Kýpurbúar. Kýpurbúar höfðu veg og vanda af skipulagi þessara leika og gerðu það með sóma.

Lið Íslands var skipað af Gísla Kristjánssyni í 105 kg flokki, Erlendi Jóhannessyni í 94 kg flokki, Sigurði Bjarka Einarssyni í 85 kg flokki og Hrannari Guðmundssyni í 69 kg flokki.

Gísli Kristjánsson snaraði 135 kg og missti 140 kg naumlega. Hann jafnhattaði 150 kg. Gísli var í þriðja sæti allra keppenda á Smáþjóðaleikunum samkvæmt stigatöflu þrátt fyrir að hann væri langelstur allra keppenda, 46 ára. Árangur Gísla vakti athygli á mótinu og er hvatning fyrir alla lyftingamenn að láta ekki deigan síga þótt þeir séu komnir af léttasta skeiði.

Erlendur Jóhannesson snaraði 118 kg og jafnhattaði 138 kg, og er snörunin og samanlagður árangur Íslandsmet fullorðinna, auk þess sem snörun, jafnhöttun og samanlagður árangur er Íslandsmet unglinga. Þetta voru gullfallegar lyftur eins og Erlends er von og vísa, og veruleg bæting hjá honum, en samt sem áður leit út fyrir að hann ætti meira inni. Erlendur varð í fimmta sæti í stigakeppni einstaklinga og hreppti sérstök verðlaun sem besti unglingurinn á mótinu, en hann er 19 ára. Íslendingar geta verið stoltir af þessum glæsilega íþróttamanni. Erlendur Jóhannesson var besti unglingur mótsins

Sigurður Bjarki Einarsson snaraði 111 kg og jafnhattaði 135 kg, sem er nálægt hans besta árangri í snörun, en í annarri tilraun jafnhendingar tóku sig upp gömul meiðsli í læri hans og hann varð þá að hætta keppni og láta sér nægja þau 135 kg sem hann hafði jafnhattað. Vonandi gróa þessi meiðsli fljótt
og örugglega. Hrannar Guðmundsson snaraði 98 kg, jafnhattaði 117 kg, sem eru hvort tveggja Íslandsmet, auk þess sem samanlagður árangur er einnig Íslandsmet.