|
Miðvikudagur, 17. desember 2008 14:40 |
Opna Lyftingamót Ármanns Ljósm.Reuters/Yves Herman |
Hið árlega Opna lyftingarmót Ármanns verður haldið næskomandi laugardag 20.desember í Ármannsheimilinu og hefst mótið kl 13.00. Vigtun fyrir mótið verður einnig í Ármannsheimilinu og verður kl 11.00 á mótsdag. Mótið er stigamót með fáum keppendum þannig það verður keppt eftir þyngd á stöng og reynt að hafa gott rennsli á þessu.
Á mótinu verður keppt í Snörun (snatch) og Jafnhöttun (clean & Jerk), þyngdarflokkar karla eru 56kg, 62kg, 69kg, 77kg, 85kg, 94kg, 105kg og +105kg. Hjá konunum eru flokkarnir 48kg, 53kg, 58kg, 63kg, 69kg, 75kg og +75kg. Til gamans má geta að á lyftingar.com er ýmis fróðleikur um ólympískar lyftingar, skrá um núgildandi íslandsmet og fleira.
|