Íslandsmeistaramót í Ólympískum Lyftingum Laugardaginn 18. apríl var haldið íslandsmeistaramót í ólympískum lyftingum í Ásgarði í Garðabæ. Sjö keppendur mættu til leiks í fjórum þyngdarflokkum. Frá vinstri Vikingur Aron Fróði Ægir Ásgeir Gísli Erlendur
Í 69kg flokki keppti Aron Sigurþórsson, Ármanni. Hann snaraði 58kg í annarri tilraun en mistókst naumlega við 65kg í þriðju tilraun, sem hefði verið íslandsmet unglinga. Aron jafnhattaði síðan 70kg í fyrstu tilraun, 76kg í annarri tilraun og mistókst aftur naumlega með 81kg í jafnhöttun í þriðju tilraun, sem einnig hefði verið íslandsmet. Það er ljóst að Aron mun fella þessi íslandsmet innan skamms. Aron er íslandsmeistari í 69kg flokki í ólympískum lyftingum 2009.
Erlendur Helgi Jóhannesson keppti í 85kg flokki. Í fyrstu tilraun í snörun lyfti hann 92kg, sem er íslandsmet unglinga. Í annarri tilraun snaraði hann 96kg og bætti þar með eigið met. Í þriðju tilraun mistókst honum naumlega að snara 100kg. Þegar kom að jafnhendingu hóf Erlendur keppni á 113kg og lyfti þvi auðveldlega. Sú lyfta var tvöfalt íslandsmet unglinga því hún gaf met bæði í jafnhöttun og í samanlögðum árangri. En Erlendur bætti um betur í næstu tveimur lyftum þar sem hann jafnhattaði fyrst 118kg og síðan 121kg. Báðar þessar lyftur voru tvöföld íslandsmet og má segja að Erlendur hafi samtals sett átta unglingamet á mótinu. Eftir stendur þá að Erlendur á öll þrjú unglingametin í 85kg flokki, í snörun, í jafnhöttun og í samanlögðum árangri. Erlendur er íslandsmeistari í 85kg flokki í ólympískum lyftingum 2009.
Í 94kg flokki voru þrír keppendur, Fróði Kristjánsson, Ármanni, Ægir Valsson, Ármanni, og Víkingur Eyjólfsson, Ármanni. Fróði snaraði 67kg í annarri tilraun og 71kg í þriðju tilraun. Hann jafnhattaði 92kg í fyrstu, 97kg í annarri og 100kg í þriðju tilraun.
Ægir snaraði 70kg í fyrstu tilraun og 75kg í annarri en mistókst með 80kg í þriðju. Ægir átti í erfiðleikum í snöruninni vegna smávægilegra meiðsla en bætti um betur í jafnhöttuninni. Fyrsta jafnhöttunin var 112kg og var það vandalaus lyfta. Önnur tilraun með 118kg mistókst, en það hefði verið íslandsmet unglinga. En Ægir var ekki af baki dottinn því hann óskaði þess að stöngin yrði þyngd í 120kg, sem er enn meiri bæting á unglingametinu. Hann lyfti þeirri þyngd vandræðalaust og bætti þar með unglingametið um þrjú kg. Víkingur hóf keppni í snörun á 105kg og tók þá lyftu nokkuð léttilega. Honum mistókst síðan við 110kg í annarri og þriðju tilraun. Í jafnhöttun tók Víkingur 125kg í fyrstu tilraun en mistókst síðan tvisvar við 130kg. Víkingur er íslandsmeistari í 94kg flokki í ólympískum lyftingum 2009, Ægir er í öðru sæti og Fróði í þriðja. Í +105kg flokki voru tveir keppendur, Ásgeir Bjarnason, FH og Gísli Kristjánsson, Ármanni. Ásgeir byrjaði fremur illa á því að mistakast tvisvar að snara 120kg og var þar með kominn í stóra hættu með að falla úr keppni með því að mistakast í öllum þremur tilraunum í snörun. En í stað þess bað hann um að þyngdin á stönginni yrði aukin í 123kg og lyfti þeirri þyngd léttilega. Ásgeir jafnhattaði síðan 140kg, 146kg og loks 151kg, sem er persónulegt met fyrir Ásgeir. Gísli Kristjánsson var stjarna mótsins meðal fullorðinna. Hann snaraði fyrst 130kg, síðan 135kg og loks 140kg. Allt voru þetta gullfallegar lyftur, enda er Gísli þekktur fyrir fagra snörun. Gísli jafnhattaði síðan fyrst 155kg, síðan 160kg og loks 165kg. Gísli missti því ekki eina einustu lyftu á mótinu. Gísli er íslandsmeistari í +105kg flokki í ólympískum lyftingum 2009 og Ásgeir er í öðru sæti.
Gísli sigraði örugglega í stigakeppni mótsins, fékk 324 Sinclair stig, þar sem keppendur eru bornir saman með tilliti til bæði líkamsþyngdar og samanlagðs árangurs.
|