Sterkasta Kona Íslands 2011 Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 13. ágúst 2011 00:00

Skráning er í gangi á Facebook grúbba keppninnar eða í gegnum tölvupóstinn: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Katrín Jóna Kristinsdóttir
Þóra Þorsteinsdóttir
- 2010 Champion
Dagbjört Harðardóttir
Rósa Birgisdóttir
Rakel Stefý Auðunsdóttir
Thelma Snorradóttir
JÓhanna Vigfúsdóttir
Bryndis Olafsdottir - 1995, 1996, 1997, 1998 Champion
Jóhanna Eivinsdóttir - 2009 Champion


Keppnin um Sterkstu Konu Íslands 2011 verður haldin í þriðja sinn 4.-5.nóvember í tengslum við Icelandic Health and Fitness Expo sýninguna. Mótið verður því haldið í Hörpunni.

Allir skráðir keppendur munu taka þátt í fyrstu tvem greinunum sem eru Drumbalyfta og Uxaganga. eftir það munu þeir keppendur sem eru í átta fyrstu sætunum eftir þær greinar halda áfram í úrslitin. Úrslitin eru 3 greinar:

#3: BAG & DRAG - á tíma - 90 sekúndur til að klára greinina (sú vinnur sem nær að gera mest á 90 sekúndum)


Skella dóti upp á sleða

Draga að endalínu

3 hlutir sem vega frá 40kg upp í 60kg eru bornir yfir á sleða. Þegar allir þrír  hlutirnir hafa verið bornir á sleðann skal hann dreginn að endalínunni. Sú sem nær að klára eða gera mest á 90sekúndum sigrar greinina.




#4: FORWARD HOLD - hver nær að halda lengst - enginn tími

Allir keppendur keppa á sama tíma. Halda þarf á 10kg ketilbjöllu með beinar hendur fram í axlahæð eins lengi og hægt er. Um leið og ketilbjallan fer niður fyrir axlarhæð eða fyrir ofan augnahæð er keppandi úr leik. Tekinn er tíminn hver getur haldið lengs og sigrar sú sem nær að halda lengst út.

#5: DEADLIFT - Hver nær að halda lyfta mestri þyngd - enginn tími

Hver keppandi fær þrjár tilraunir við hverja þyngd sem sett er á stöngina. Strappar eru leyfðir. Allur annar búnaður er ekki leyfilegur. Til að ljúka réttstöðulyftunni þarf að læsa (mjaðimir fram).

Ekki verður settur neinn hámarksfjöldi keppenda heldur mega allir keppa í fyrst tvem greinunum en síðan munu þær sem eru í top 8 sætunum eftir fyrstu tvær greinarnar halda áfram í úrslitin sem eru þrjár greinar.

Allir sem hafa áhuga á að keppa, styðja viðburðinn eða aðstoða á einhvern hátt endilega hafið samband við Gemmu Magnússon Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Facebook grúbba keppninnar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 16. ágúst 2011 18:26