Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 17. ágúst 2009 18:00

Sterkasta Kona Íslands: Fyrstu Æfingunni Lokið


Á sunnudaginn var fyrsta æfingin fyrir Sterkasta Kona Íslands og mættu fjórar hressar konur til leiks en það voru þær Jóhanna Eivinds, Sunna Hlín, Einý(Módel Fitness) og JóFó undir handleiðslu Gemmu Magnússon. Fyrst var tekin fyrir bændagangan þar sem hitað var upp með búnaðin sjálfan sem er um 20kg í hvorri hönd. Síðan var endaði í 40,7kg í hvorri hönd og hlaupið með þau hrikalega vegalengd! JóFó er 163cm, lítil og nett og var ótrúlegt að sjá kraftinn í henni. Síðasta greinin sem var prófuð var dekkjavelta þar sem Gemma sýndi tæknina við að velta dekki og var verið að mastera tæknina. Jóhanna Eivinds hefði getað verið þarna allan daginn að velta dekkinu, skít létt. Einý er 178cm og því nýttist hæðinn henni vel og náði hún þremur veltum. Sunna Hlín og JóFó sem báðar eru 163cm létu sér nægja að æfa tæknina við að koma dekkinu í næstum lárétta stöðu og sprengikraftinn ;)

Næsta æfing verður haldin fyrir utan Super Gym á miðvikudaginn kl 18.00. Það verða svo æfingar alla sunnudaga kl 12.00 og alla miðvikudaga kl 18.00 fram að móti. Keppt verður í Réttstöðulyftu á mótinu og því er tilvalið að mæta á Stelpadeddæfingar alla föstudaga kl 16.00 í Super Gym.  Smellið á nánar til að lesa alla greinina.

Keppnin Sterkasta Kona Íslands verður haldin laugardaginn 17.október 2009 í Vetrargarðinum Smáralind.  Allur ágóði af keppninni rennur til Krabbameinsfélags Íslands til styrktar brjóstakrabbameini. Hægt er að skrá sig með því að hafa samband við Gemmu Magnússon : Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Thelmu Ólafsdóttur: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Keppt verður í Bændagöngu 50kg í hvorri hönd þar sem reynt er að fara sem lengasta vegalengd á 90 sekúndum - leyfilegt er að leggja frá sér lóðin og taka þau aftur upp.

Öxullyfta (Super Yoke) 150kg hlaupið eða gengið 20 metra, þar sem reynt er að ná sem skemmstum tíma.

Hleðslugrein með 6 hlutum sem eru frá 50kg til 100kg
 


Drumbalyfta 50kg þar sem keppst er við að ná sem flestum endurtekningum)
 
 
Réttstöðulyfta stöng staðsett um 18 tommur frá gólfi. Hér sigrar sú sem tekur mestu þyngdina
 

 
Sólning dekkjavelta og dekkjadráttur

Keppendur fá allir einstaklega fallega verðlaunargripi og einnig verður veittur farandsbikar til þeirrar stúlku sem sýnir mesta andan i keppninni en hann er gefin af Thelmu Ólafsdóttur í minningu Bryndísar Birnir(frænku Thelmu) sem lést af völdum brjóstakrabbameins.