|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 09. september 2009 12:38 |
Aflraunaæfing fyrir Stelpur í dag ! :) Æfingarnar fyrir keppnina Sterkasta kona Íslands hafa gengið alveg ótrúlega vel og alltaf um 11 stelpur á hverri æfingu. Í dag klukkan 18.00 í Super Gym erður Uxagangan æfð í fyrsta skipti og í annað skiptið æft loading race en það er kapphlaup við að koma sem flestum steinum(misþungum) upp á palla. Allar stelpur velkomnar að koma og prófa :D Síðasta Sunnudag var bóndagangan æfð og síðan dekkjaveltan þar sem við þurftum að velta dekkinu 5 veltur og fara svo strax í að draga 100kg hræðilega marga metra ! Endaspretturinn er alltaf erfiður :)
Katrín Eva fleygði dekkinu eins og tuskubrúðu ! Skítlétt fyrir hana ! Dekkið er 185kg !
100kg dregin
Sumar voru orðnar þreyttar og reyndu að fela sig inn í dekkinu !
|