Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Sunnudagur, 11. október 2009 20:44

Hver verður Sterkasta Kona Íslands 2009 ?

Keppnin fer fram laugardaginn 17.október í Vetrargarðinum, Smáralind og hefst kl 14.00. Tuttugu flottar stelpur munu berjast um titilinn í sex keppnisgreinum. Mikil spenna verður á keppninni og þó svo margar stelpur séu að keppa mun keppnin ganga hratt og örugglega fyrir sig þar sem tveir keppendur fara saman í allar greinar nema í Réttstöðunni og Drumbalyftunni en þá munu fjórar keppa í einu ! Ekki missa af þessum einstaka viðburði !!

 

Dagskrá 

Kl 14.15 - Super Yoke/Uxaganga – 20metrar – 150kg – Besti tíminn
Kl 14:35 - Dekkjavelta - 10 veltur - 185kg - Besti tíminn
Kl 15.00 - Loggur/Drumbalyfta - 90 sekúndur - 40kg - Flestar endurtekningar
Kl 15.30 - Bændaganga - 90 sekúndur - 50kg í hvorri hönd – Lengsta vegalengdin
Kl 15.50 - Réttstöðulyfta - 3 tilraunir við hverja þyngd - Hámarks þyngd
Kl 16.10 - Hleðslugrein - 90 sekúndur - 6 steinar sem vega frá 50kg upp í 100kg - Besti tíminn    

 Smellið á Nánar til að sjá keppendalistann

Anna Heiða
Bjarndís Helena Friðriksdóttir
Edda Sveinsdóttir

Einhildur Ýr Gunnarsdóttir

Elísabet Þóra Jóhannesdóttir

Helga Camilla

Herdís Hulda Guðmannsdóttir

Jóhanna B. Árnadóttir
Jóhanna Árnadóttir
Jóhanna Eivinsdóttir Christiansen

Katrín Eva
Kolbrún Axelsdóttir

Kristjana Ósk Jónsdóttir

Ragnheiður Martha Jóhannesdóttir

Rakel Lilja
Þorbjörg Sólbjartsdóttir

Sigga Lund

Sólveig Bjarnar

Sunna Hlín

Thelma Snorradóttir
Ylfa Rún Jörundsdóttir