|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Þriðjudagur, 06. júlí 2010 10:14 |
Monica Brant með F.E.M Camp á Íslandi ! Monica Brant og Hildur Edda 2007 Ljósm. Einkasafn
|
Nýjustu fréttir eru þær að Monica Brant, fitnesskeppandi, sé að fara koma til Íslands 16.-17.nóvember (klárlega bara til að koma í afmælið mitt;) ) og ætlar að vera með F.E.M Camp en það er 2 daga námskeið þar sem farið er yfir heilsusamlegt líferni, æfingar, fitnesspósur, framkomu og fleira. Monica kennir á námskeiðinu hvernig þú getur komist í besta form lífs þíns með því að deila fitness og næringarráðleggingum sínum. Allar upplýsingar er hægt að finna á heimasíðunni hennar femcamp.net.
Ein íslensk stelpa hefur farið á námskeiðið hjá henni í Bandaríkjunum en það var hún Hildur Edda sem fór árið 2007 Ferðasaga og upplifun hennar á námskeiðinu er að sjálfsögðu hér inn á vodvafikn.net .
|