|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Fimmtudagur, 09. september 2010 14:28 |
IFBB á Íslandi með tilkynningu um mótið í nóvember Norðurlandamótið sem haldið var á Íslandi 2008 Ljósm. Sunna Hlín
Jæja núna 10 vikum fyrir mót hefur IFBB á Íslandi gefið út upplýsingar um mótið sem haldið verður í nóvember. Búið er að bæta við unglingaflokki í Módel Fitness. Hérna er tilkynningin í heild: "Laugardaginn
20. nóvember verður haldið Bikarmót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna í
Háskólabíói. Keppt verður í fitnessflokkum karla og kvenna,
módelfitness og vaxtarrækt. Ennfremur verður keppt í unglingaflokkum í
fitnessflokki kvenna og í módelfitness. Mótið fer að óbreyttu fram með
hefðbundnu sniði, en þó ber að segja frá því að hugsanlegt er að mótið
verði haldið í tengslum við viðburð sem nefnist Icelandic Fitness and
Health Expo sem ætlunin er að fari fram sömu helgi.
Hugmyndin
með þeim viðburði er að gera tilraun til að sameina í eina helgi ýmsar
keppnisgreinar, vörusýningar, fyrirlestra og fleira sem varða líkamsrækt
og heilsu. Skipuleggjendur sýningarinnar hafa lýst yfir áhuga á að
úrslitin á laugardagskvöldinu í Háskólabíói verði einskonar hápunktur
helgarinnar og að forkeppni verði haldin á sýningarsvæðinu í Mosfellsbæ á
föstudeginum og hafa forsvarsmenn Alþjóðasambandsins tekið vel í
hugmyndina. Það er því hugsanlegt að Bikarmótið verði hluti dagskrár
Icelandic Fitness and Health Expo. Hvernig sem það fer mega keppendur
fara að huga að undirbúningi fyrir mót 20. Nóvember. "
|