Tilkynning af heimasíðu IFBB á Íslandi: fitness.isÍslandsmótið í fitness og vaxtarrækt verður haldið í Háskólabíói í Reykjavík um Páskana, nánar tiltekið fimmtudaginn og föstudaginn 22. og 23. apríl. Undanfarin 16 ár hefur þessi stærsti árlegi viðburður líkamsræktargeirans verið haldinn á Akureyri og fjöldi áhugamanna um líkamsrækt hefur lagt leið sína þangað á hverju ári. Sú hefð tekur breytingum þetta árið. Mjög góð aðstaða er til að halda mót sem þessi í Háskólabíói, bæði fyrir áhorfendur og keppendur. Norðurlandamótið var á sínum tíma haldið í Háskólabíói og Bikarmótið hefur verið haldið þar á haustin og því er komin góð reynsla á mótahald í þessu frábæra húsi. Búist er við miklum fjölda keppenda og fregnir berast af því að gríðarlega sterkir keppendur úr öllum áttum séu að stefna á þetta stærsta mót ársins. Keppnin verður haldin á tveimur dögum eins og áður sagði. Á fimmtudeginum sem er Skýrdagur og almennur frídagur fer fram keppni í Módelfitness og á Föstudeginum langa verður haldin forkeppni snemma dags og hápunkturinn eru úrslitin um kvöldið. Skráning keppenda er þegar hafin á fitness.is og lýkur 31. mars. Vakin er athygli á að skráningu lýkur þremur vikum fyrir mót sem er óvenju snemmt, en líklegt er að þeir keppendur sem á annað borð ætla að keppa verði búnir að ákveða sig þá.
Keppnisflokkar:
- Fitness kvenna -163
- Fitness kvenna +163
- Fitness kvenna unglingafl.
- Fitness karla
- Fitness karla 40 ára +
- Fitness karla unglingafl
- Vaxtarr.karlar að og með 80 kg
- Vaxtarr.karlar að og með 90 kg
- Vaxtarr.karlar að og með 100 kg
- Vaxtarr.karlar yfir 100 kg
- Vaxtarr.unglingafl. karla (-21 árs)
- Vaxtarr.opinn flokkur kvenna
- Vaxtarr.karlar 40 ára +
- Módelfitness kvenna, -167 sm
- Módelfitness kvenna, +167 sm
- Módelfitness kvenna, unglingaflokkur
Bestu kveðjur, Einar Guðmann
|