|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Fimmtudagur, 02. júlí 2009 12:44 |
Ferðin um Vestfirði hafinKlukkan átta í morgun lagði 21 manns af stað til Vestfjarða ! Einn keppandi bættist við keppendalistann en hann heitir Hafþór Júlíus Björnsson og hefur ekki komið við sögu áður í þessu sporti. Benedikt Magnússon slóst með í för og er nú einkabílstjóri. Fyrsta stopp var að sjálfsögðu í Baulunni hjá Valda Borgarnebollu sem var gráti næst að komast ekki með í þessa hrikalegu ferð. Á Borðeyri var Jón Þór og kona hans tekin upp. Farangurs geymslunni var ekki lokað nógu vel og því einhverstaðar á leiðinni opnaðist farangursgeymslan og farangurinn byrjaði að dreifast út um allar sveitir. Ekki er vitað á þessari stundu hvort að allar töskurnar séu fundnar. Næst á dagskrá er að fá sér að éta fyrir átökin. Haldið áfram aðfylgjast með sögunni gerast hér á Vöðvafíkn ! Smellið á Nánar til að sjá myndir !
Hafþór nýliði
Bumburnar viðraðar eftir árið í Staðarskála

Pósturnar æfðar í Staðarskála
Stefán Sölvi og Palli (Já hann er búinn að aflita á sér hárið !)
|
|
Síðast uppfært: Fimmtudagur, 02. júlí 2009 14:21 |