Aflraunir
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 29. júní 2010 16:39

Uppsveitarvíkingurinn 7.ágúst

Laugardaginn 7.ágúst verður Uppsveitarvíkingurinn haldinn í Hveragerði, Selfossi og þar í kring. Það verða frábær verðlaun meðla annars glæný HP fartölva.  Keppnisgreinar. Kútakast yfir rá, Sirkus Dumbell, Uxaganga, Bændaganga o.fl. Skráning fer fram á hjaltiar(hjá)simnet.is

Selfoss, Borg í Grímsnesi

Ljósm. Rakel Lilja

Páll Logason sigraði Uppsveitarvíkinginn 2009 en þetta var ótrúlega jöfn og spennandi keppni því þegar aðeins ein grein var eftir voru Palli og Orri jafnir í fyrsta sæti með 30 stig og Hafþór með 29 stig ! Síðasta greinin var Húsafellshelluburður en fyrstur í greinina var Stulli sem fór á tímanum 12,25sek. Óli Valur var annar og fór á tímanum 11,81sek og sagðist Hjalti ekki hafa séð svona góðan tíma. Þriðji var Hafþór en hann bætti tíman og fór á 10,22 sek. Hann var alveg ótrúlega fljótur og hefði hann án efa sigrað greinina ef hann hefði verið fljótari að ná steininum upp, þvílík ferð !! Orri var fjórði og bætti tíma Hafþórs um rúmar 2 sekúndur þegar hann náði tímanum 8,04 ! Þarna var maður farinn að velta fyrir sér hvort að Palli myndi ná þessum tíma þar sem hann er lægri en Orri. Palli rífur upp steininn og þýtur af stað og nær ótrúlegum tíma, 7,87sek og þar með búinn að sigra Uppsveitarvíkinginn 2009!
 
Skráning: Hjalti Úrsus: 8978626 eða hjaltiar (hjá) simnet.is

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 15. júlí 2010 10:51
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 28. júní 2010 17:46

Skráning á Aflraunameistarann 2010

Aflraunameistarinn 2009
Úlfur Orri og Hallgrímur sáttir á Aflraunameistaranum 2009
Ljósm.Sunna Hlín

Búið er að færa keppnina um eina viku þannig að mótið verður haldið 16.-17.júlí á Akureyri. Keppt verður í kvennaflokk, -105kg og +105kg í karlaflokki. Allur ágóði af mótinu mun renna til eineltis samtakana Regnbogabörn en þeir sem hafa áhuga á að styrkja geta haft samband við Jón Þór í síma 868-2085. Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Skráning sendist á Jón Þór.

Smellið á nánar til að sjá dagskrá og greinar

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 29. júní 2010 16:50
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 28. júní 2010 13:50

Viðeyjarjarlinn haldin á laugardag

Keppendur undir -105kg keppa um hver sé Sterkasti Maður Íslands

Smellið á nánar til að fá allar upplýsingar

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 01. júlí 2010 17:55
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 26. júní 2010 18:57

Stefán Sölvi meiðist á kálfa 

 
Ljósm. Einkasafn

Í dag fór fram keppnin Viking Power Challange fram í Storefjell,Noregi og fór Stefán Sölvi út að keppa. Í fyrstu greininni sleit hann hugsanlega eitthvað í kálfanum og gat því ekki haldið áfram keppni.

Smellið á nánar til að sjá sundurliðuð úrslit

Síðast uppfært: Laugardagur, 26. júní 2010 21:46
Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 24. júní 2010 11:11

Sterkasti Maður Íslands í sjónvarpinu

Í kvöld verður fyrri hluti þáttar um keppnina Sterkasti Maður Íslands sýndur á Stöð2Sport klukkan 20:30. Seinni hlutinn verður sýndur næsta fimmtudag eftir viku.


Benedikt Magnússon var í 2.sæti á mótinu
Ljósm. Sunna Hlín

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL