Fitness
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 19. október 2009 16:15

Icefitness 2009: Skráning hafin

Eva Sveinsdóttir
Eva sigurvegari 2007-2008
Ljósm.Sunna Hlín


Skráning er hafin í Icefitness sem fer fram 12. og 14.nóvember. Samanburður fer fram fimmtudaginn 12.nóvember og keppninn sjálf fer fram á laugardeginum 14. nóvember í Reykjanesbæ.

Keppninn verður með svipuðu  sniði og 2008 í opnum flokki en einnig verður keppt í unglingaflokki, 16-17 ára í kvenna flokki og 16-19ára í karlaflokki. Í unglingaflokki er vægi samanburðar minna eða 20% og kröfur um skurð eru mildari.

Keppnisgreinar í kvenna flokki eru armbeygjur, fitness greip, hraðaþraut og samanburður. Keppnisgreinar í karla flokki eru upphífur, dýfur hraðaþraut og samanburður.

 

Sævar Ingi
Sævar sigurvegari 2007-08
Ljósm.Sunna Hlín

Keppninn verður tekinn upp og gerður verður glæsilegur sjónvarpsþáttur um mótið sem sýndur verður á Sjónvarpinu, RÚV, á besta tíma.
Það stefnir í hörku spennandi keppn.

Skráningar fara fram á netfanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og lýkur 5.nóvember.

Ef einhverjar spurningar eru hikið ekki við að hafa samband við Vikar í 899 0501

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 22. október 2009 10:01
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 10. júlí 2009 14:48

Íslandsmót Icefitness 2009 

Íslandsmót Icefitness verður haldið á þeim dýrðar degi 14.nóvember næstkomandi (afmælisdagurinn minn hehe) Vikar í líkamsræktarstöðinni Lífstíl í Keflavík mun sjá um mótið líkt og í fyrra.

Í fyrsta sinn ætlar Icefitness að bjóða upp á Unglingamót samhliða Íslandsmótinu. Stelpur á aldrinum 16-17ára og strákar 16-19 ára. Ekki verða gerðar sömu kröfur á skurð eins og í eldri flokknum og mun hann gilda 20%.

Nánari upplýsingar um Unglingamótið og staðsetning mótanna koma á netið í byrjun ágúst.

Hér til hliðar er grein úr Séð & Heyrt sem ég skannaði inn en þetta birtist þar 15.-21.nóvember 2007 smellið á myndina til að sjá í fullri stærð. Setti einnig inn viðtal við Önnu Bellu sem birtist í sama blaði hér. (Smellið á myndirnar til að lesa viðtalið)
 
 
 
 
 

Síðast uppfært: Föstudagur, 10. júlí 2009 15:30
 
Föstudagur, 23. janúar 2009 10:34

Kristínu Kristjáns boðið á Arnold Classic

Kristín Kristjáns


Kristinu Kristjáns hefur verið boðið að taka þátt í Figure fitness á amateurmóti Arnold Classic sem haldið verður í mars á þessu ári. Kristín er því annar Íslendingurinn sem hefur fengið boð á mótið í ár en eins og við sögðum frá fyrir stuttu þá var Benedikti Magnússyni einnig boðið á mótið en þá í aflraunum. 

5 aðrir keppendur frá Norðurlöndunum var boðið á Amatuermótið en það voru þau Joel Pascua , Evy Rustad, Violetta A.G. Brandslien Sprus frá Noregi, Salla Kauranen frá Finnland og Kristina Dybdahl frá Danmörk

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 04. febrúar 2009 18:04
Nánar...
 
Mánudagur, 17. nóvember 2008 21:30

Sundurliðuð Úrslit Karlaflokks Icefitness

 

Nánar...
 
Sunnudagur, 16. nóvember 2008 23:29

Myndir frá Icefitness



Hér
eru myndir frá Icefitness sem ég fékk sent frá Evu Sveinsdóttur og Vikari :)

 

 
 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL