Kraftlyftingar
Bikarmót KRAFT 2010
Skrifað af: Lárus Ívar   
Föstudagur, 12. nóvember 2010 17:32

Bikarmót Kraftlyftingasambands Íslands 2010 verður haldið í íþróttamiðstöðinni, Mosfellsbæ sunnudaginn 21. nóvember.  41 keppandi er skráður sem er heldur meira en í fyrra en þá voru 21 keppendur og stefnir allt í flott mót. Bikarmótið verður hluti af Expo-inu og í tilefni þess mun sérstakur gestakeppandi taka þátt en það er Dean Bowring, ríkjandi heimsmeistari í +125 kg flokki IPF. Smellið á Nánar til að sjá keppendalista.

Nánar...
 
Bikarmót RAW Íslandi
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 09. nóvember 2010 16:51


Bikarmót RAW Ísland í kraftlyftingum verður haldin 4.desember í Jakabóli, Þverholti 17, kl 13.00. Vigtun keppenda fer fram á föstudeginum frá kl 19-20.00 og laugardeginum frá kl 11-12.00. Skráningar sendist á netfangið magnusver63 (hjá) hotmail.com eða með sms í síma 663-0001. Fram þarf að koma fullt nafn, fæðingarár og þyngdarflokkur.

 
Óbirtar myndir
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Sunnudagur, 24. október 2010 22:53

Hér eru myndir sem ég á og hef gleymt að birta ;)

DSC_0543
Myndir úr Jakabóli og frá síðustu æfingu Páls Logasonar fyrir Heimsmeistaramót WPF 2009

DSC_0020
Myndir úr gamla Super Gym

DSC_0265
Myndir frá Íslandsmóti WPC í Réttstöðulyftu og bekkpressu



 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Sunnudagur, 17. október 2010 16:01

BIKARMÓT KRAFT Í KRAFTLYFTINGUM 2010

Skráning á Bikarmót KRAFT er nú í fullum gangi en mótið fer fram í  íþróttahúsinu í Mosfellsbæ og verður í tengslum við Icelandic Fitness & Health Expo. Mótið verður haldið sunnudaginn 21.nóvember og fer skráning fer fram í gegnum Kraftlyftingarfélögin. Þeir sem vilja vera með og eru ekki skráðir í neitt félag geta valið sér félag hér að neðan. Skráningu lýkur á miðnætti þann 7.nóvember

Thelma Ólafsdóttir Bikarmót 2009
Thelma Ólafsdóttir í Bikarmóti KRAFT 2009
Ljósm. Sunna Hlín

Nánar...
 
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 14. október 2010 14:29

BIKARMÓT ÍKF METAL Í KRAFTLYFTINGUM 2010

Skráning á Bikarmót ÍKF METAL er nú í fullum gangi en mótið fer fram þann 23.október en ekki er búið að gefa upp staðsetningu. Skráning sendist á sirmagister (hjá) visir.is

Kvennaflokkur
75kg flokkur

Halla Rún Friðriksdóttir
Halla Rún
Ljósm.Sunna Hlín

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL