Kraftlyftingar
Raw mót 7.maí
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 15. apríl 2011 10:57

Íslandsmót RAW í kraftlyftingum, bekkpressu og réttstöðulyftu !

laugardaginn 7 maí kl 13,00

viktun verður í Jakabóli Föstudaginn 6 kl 19-20 og keppnisdag kl 11.30-12

skráning á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða með sms í síma 6630001

 
Keppendalisti: Íslandsmót METAL 2011
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 13. apríl 2011 13:16

Það má búst við 400kg+ beygjum hjá tveimur keppendum og 350kg+ bekk hjá einum. Fjöldi keppenda verður með 300+ í beygjum og deddi og 200+ í bekk.

30 keppendur í 10 þyngdarflokkum kvenna og karla er á þessu fjórða og fjölmennasta pávermóti í sögu Metal og ef allir skráðir keppendur mæta. Í framhaldinu eftir þetta Íslandsmót munu 4 keppendur Metal fara á Evrópumót til  Írlands þar sem m.a. þeir Gunnar Freyr master og Kári Catzilla munu verja heiður Íslands í deddinu en fjölmenn molasveit mun fara í strandhögg til Florida á Heimsmeistaramót sem haldið verður þar í nóvember.

Flottir kroppar verða á keppninni og gefa svöngum próteinhristinga ;)

Íslandsmótið verður halfið í Laugardalshöllinni laugardaginn 16 apríl .MÓTIÐ HEFST KL.12.00 Viktun verður á föstudeginum daginn áður í SteveGym kl.12-13 og aftur kl.17-18. Fyrir keppendur utan af landi sem þess þurfa er hægt að vigta á keppnisstað á laugardeginum á milli kl.10-12.

kEPPNISGJALD ER KR.4.000 og aðgangseyrir 1.000kr.

Nánar...
 
Fyrsta Stelpudedd ársins 2011
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 25. mars 2011 10:42
Fyrsta Stelpudedd ársins verður haldið á morgun, laugardaginn 26.mars 2011 kl 14.00. Deddað verður hjá Kraftlyftingadeild UMF á Selfossi en hún er með aðstöðu í Jötunheimum, Baugstjörn 17. Allar skvísur velkomnar. Pottur og Sauna eftir æfingu þar sem skálað verður í kampavíni/eplazider fyrir fyrsta Stelpudeddi ársins. Frír próteinshake verður í boði Perform.is eftir æfinguna.nEf þið hafið einhverjar spurningar endilega hafið samband við Bryndísi í síma 659-9198.

Leiðbeiningar:
Keyra á Selfoss, yfir brúna og beygja til vinstri úr hringtorginu. Keyra bæinn á enda og beygja til hægri hjá BYKO (gatan heitir Langholt). Eftir nokkur 100m beygja til vinstri hjá Aðaltjörn og svo strax aftur til vinstri hjá Baugstjörn (17).

 
Íslandsmeistaramót KRAFT 2011
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 10. mars 2011 11:33


 
Ert þú með rangan bol í töskunni ?
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 22. nóvember 2010 22:08

Tveir bekkpressubolir hurfu í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ á Bikarmóti KRAFT í gær. Svartur super katana nr 38 og svartur Titan Katana sloppur nr.50. Þetta eru rándýrar græjur og sárt saknað af eigendum sem ætluðu að nota þá til góðra hluta. Endilega gáðu í töskuna og athuga hvort þú hafir fengið eitthvað í misgripum.


 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL