Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 07. september 2010 15:47

"Svali, Svali svo bragðgóður og frískandi !!"

Alltaf er maður að sjá ný andlit í World Class þar sem aflrauna og kraftlyftingarfólk er hvað mest áberandi. Rakst nýverið á hann Flosa Jónsson en hann var þar að æfa í bol frá 1893 og auðvitað varð ég að taka mynd ;)

Flosi Jónsson í "Svala" fíling
Flosi í "Svala" fíling - smellið til að sjá stærri
Ljósm. Sunna Hlín

Páll Logason er búinn að vera á hrikalegu fegrunarprógrammi undanfarið og sést mjög oft taka byssur í Laugum. Hann er nú dottinn í 124kg en hann vigtaðist 138kg á Vestfjarðarvíkingnum sem haldinn var í júlí á þessu ári. Markmið hans er að verða ennþá flottari og sterkari !

Páll Logason mundar byssurnar
Páll Logason í sinni uppáhaldsstellingu
Ljósm. Sunna Hlín