Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 13. október 2009 12:46

Ingvar Ringó - Fyrsta sloppaæfingin fyrir HM 2009

Í gær tók Ingvar fyrstu sloppaæfinguna í Kanada fyrir Heimsmeistarmót WPF sem fram fer í Vegas í nóvember. Ingvar skellti inn myndbandi af því á Facebook. Annars var fjölmenni í Jakabóli þar sem Páll Logason var að taka fyrstu beygjuæfinguna í brók og endaði í 340kg í 90gráðum. HöfðingjaBollan kom frá Borganesi til að sjá Palla beygja en því miður þurfti Bollan að hætta við keppni vegna bakmeiðsla. 

 

Sigfús Fossdal slítur hamstreng

Þær leiðinlegu fréttir voru að berast að Sigfús Fossdal sleit hamstreng í gær. Þetta gerðist þegar hann var að taka hamstring curl eftir góða hnébeygjuæfingu þar sem hann tók 370kg létt - 390kg ekki í dýft en létt og prófaði síðan að standa upp og bakka með 410kg. Hann fór svo í 500kg 5reps í fótapressunni. Eitthvað rifnaði svo í vinstra hamnum þegar kom að hamstring curls. Sigfús er samt ekki hættur við keppnina og ætlar að mæta og keppa eingöngu á bekknum.