Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Árni Freyr Gestsson

27.mars 1984
Árni Freyr Gestsson
Ljósm. Sunna Hlín

Aflraunir

2.sæti Viðeyjarjarlinn 2010    
1.sæti -105kg fl. Kraftavíkingurinn 2010

9.sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2009
6.sæti Grundarfjarðartröllið 2009 
8.-9.sæti Íslandsmót AFA í Drumbalyftu 2009

4.-5.sæti Kraftavíkingurinn 2009
5.sæti Uppsveitarvíkingurinn 2009
 
8.sæti Austfjarðartröllið 2008 
6.sæti Uppsveitarvíkingurinn 2007
  

 Kraftlyftingar

Íslandsmeistaramót Kraft í Bekkpressu 2008 125kg fl.

185kg -195kg- 200kg

Hæð: 190cm

Off-season þyngd og keppnisþyngd: 120kg

Æfingastöð:
Jakaból og Super Gym, svo er auðvitað alltaf gott að komast í The Base.

 

Æfingafélagi:
Það er mjög misjafnt en hef æft mikið upp á síðkastið með hrikalegasta fermeter í heimi og eflaust er Heisinn að bætast í hópinn núna. Hef aðallega skipst svolítið á að æfa með flestum hrikalegustu mönnum landsins. Palli, Heisi, Orri, Óli, Stefán Sölvi, Boris og Ísleifur er svona þeir sem ég hef æft eitthvað markvisst með og svo hef ég tekið eina og eina æfingu með ýmsum öðrum hetjum.

Atvinna: Meistaranemi í fjármálum fyrirtækja

Áhugamál: Allt sem er ofur.

Hvernig kviknaði áhuginn:
Vinur minn átti bekkpressu þegar við vorum 13 ára og ég tók 35kg og var ekki sáttur við þetta þannig að ég fór bara að lyfta á fullu og bætti mig mjög hratt og mikið og varð fljótt sterkastur (í sennilega bara bekkpressu hehe) vina minna og ég hef aldrei tekið mér meira en 2 vikna pásu síðan. Áhuginn eykst bara stöðugt eftir því sem maður kynnist meira af bæði æfingum og fólki.

Hvernig datt þér í hug að fara keppa:
Ég hef alltaf litið á aflraunir sem flottustu íþrótt í heimi en ég bjóst í raun aldrei við því að keppa sjálfur. Fyrsta mótið mitt var held ég Suðurlandströllið 2007 og þar keppti ég bara af því að svo margir keppendur höfðu forfallast að það hringdu nokkrir í mig um morguninn og grátbáðu mig um að keppa tveimur tímum seinna svo ég sló til á endanum og fannst þetta svo fáranlega gaman að ég keppi alltaf reglulega eftir það (maður þarf ekki að vera bestur til að hafa gaman af aflraunum;)).

Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja?
Jón Páll

Hver eru framtíðarplönin, á að keppa aftur?
Halda áfram að bæta mig og styrkja en vera um leið í ágætis alhliða formi. Auðvitað keppi ég aftur;)

Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingar/aflraunir á Íslandi ?
Til að aflraunir nái að blómstra aftur á Íslandi, þurfa t.d. allir að leggja til hliðar allt drama og vitleysu. Síðan er að mínu mati mikilvægt að mót séu áhorfendavæn, þ.e. greinar sem ganga sæmilega hratt fyrir sig og þannig að venjulegt fólk nái að átta sig á hvað er að gerast en sjái ekki bara einhvern hlunk rembast hroðalega við einhverja x þyngd. Þetta er líka að stórum hluta í höndum keppendanna sjálfra, að vera lifandi og skemmtilegir þannig að fólk hafi meira gaman af þessu. Ekki skemmir heldur fyrir þegar menn eins og t.d. Stefán Sölvi og Benedikt Magnússon (og vonandi fleiri) ná góðum árangri á risastórum erlendum mótum.

Uppáhaldsæfing og líkamspartur ?
Ég er nýbúinn að læra að elska deddið þó að ég sé ennþá herfilega lélegur í því. Síðan dýrka ég líka basic aflraunaæfingar eins og kúlusteina, öxullyftu og bændagöngu.

Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni?
Allt lífið bara;) Ég mæti bara á mót eins og ég er þann daginn, nota samt kannski helst vorið oog sumarið til að æfa aflraunagreinarnar sjálfar.

Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ?
Glútamín, gainer og prótein. Svo er ég mjög duglegur í omega-3 og fjölvítamínum.

Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ?
"Bíddu ert þá að lyfta steinum og draga bíla og svona?“ og auðvitað: "hvernig verður maður svona ótrúlega æðislegur?"

Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ?
Andmiklum vinum mínum sem vita hvað þeir eru að tala um án þess að halda að þeirra leið sé eina rétta leiðin. Það er líka mjög stór plús að viðkomandi þekki inn á mann.

Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness/aflraunir/kraftlyftingar?
Sennilega bara að þetta sé allt sama íþróttin hehe

Hvað þarf til til þess að ná árangri ?
Trú á sjálfum sér

Ráð til nýliða:
Taktu hrikalega á því og hlustaðu á skrokkinn en ekki vera of hræddur samt, ég hef oft lent í því held ég.

 

Síðast uppfært: Laugardagur, 03. júlí 2010 20:11