Senda í tölvupóst

Orri Geirsson

15.október 1977 - 187cm - 125kg


Ljósm. Einkasafn

Nafn: Orri Geirsson
Aldur: Fæddur 1977
Búseta: Reykjavík
Hæð: 187cm
Þyngd: 125kg

Hjúskaparstaða: trúlofaður Evu Maren Guðmundsdóttur

Æfingastöð:
Jakaból, Þverholti 19, 110 Reykjavík

Æfingafélagi:
Geðbræður: Skúli Ármannss, Ólafur Valur, Magnús Ver, Andri Reyr, Haffi Ljón, Bjarni 40,
Geira bro og fleirum.
Áður hef ég æft með Stefáni Sölva, Boris, Palla og Heisa...og oft detta inn æfingar með þeim.

Atvinna: Viðskiptafræðingur hjá TR (Tryggingastofnun ríkissins) vinn þar við bókhald og innheimtu.

Áhugamál: Aflraunir og hráar kraftlyftingar á kjötinu (RAW)....(tek ekki mark á tölum teknar í búning) Ath. ég er gríðarlega andvígur búnaði í kraftlyftingum, finnst það bæði fáranlegt og glatað.

Hvernig kviknaði áhuginn: Jón Páll & Magnús Ver áttu hug minn allan í "gamla" daga, þá var ég stoltur að vera Íslendingur. Mig langaði að verða eins og þeir.

Hvernig datt þér í hug að fara keppa: Má eiginlega segja að ég hafi verið neyddur til að keppa. Ég ætlaði mér aldrei út í þessa vitleysu sjálfur en þegar ég var að byrja að æfa með Boris, þá sagði hann ég yrði bara að keppa (það hafði sennilega vantað keppendur á þeim tíma) og skráði mig alltaf án míns samþykkis á mót og ég þorði ekki öðru en bara að mæta alveg helgeðveikur í ruglið.

Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja? Jón Páll & Magnús Ver báðir 4x sterkustu menn í heimi...náttúrulega komu þessu landi á kortið! Bráðum fáum við fleiri Íslendinga í þennan hóp án efa.

Hver eru framtíðarplönin, á að keppa aftur? Keppa aftur?? Of course....This is who we are...this is what we do! (tekið úr Rambo 4), Vonandi næ ég mér fljótlega svo ég geti farið að æfa aflraunirnar aftur og keppa. (Sleit bísep síðasta sumar)

Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness/kraftlyftingar/aflraunir á Íslandi ? Með því að kjósa mig sem forseta eftir 2-3 ár. Ég ætla að breyta Bessastöðum í ofuræfingastöð og öllu Íslandi í Aflraunaland.

Uppáhaldsæfing og líkamspartur ? Ég lifi fyrir réttstöðulyftu, og ég mun aldrei hætta að æfa fyrr en ég næ 400kg. En mér finnst þetta allt frábært: bekkur, axlir, beygjur... get eiginlega ekki gert upp á milli þar.

Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni? Ég er alltaf tilbúinn fyrir keppni, mæti bara, lít á þetta sem stríð, þar sem maður veit aldrei almennilega hvenær gerð er árás, þú verður bara að vera tilbúinn.

Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Nota ekkert voða mikið af þessu, en glútamín og kreatín er alltaf klassi og náttla bara venjulegt prótein (vá var að uppgötva Syntha6, fáranlega gott prótein, pottþétt næsta prótein sem ég ætla að kaupa). Bara sem efni leyfa, þetta er allt svo dýrt hérna á þessu landi hehe. Mjög gott leyni-trix að skella í sig vel af próteini eftir pítsuát....(svona til að jafna út gæði matar ). Ég borða að meðaltali pítsur 5 sinnum á viku hehehe.

Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Spurn: „Hvenær ætlaru að taka mig í einkaþjálfun“? Ég svara bara what??? glætan ég nenni að standa í svoleiðis vitleysu, þú getur komið og hermt eftir mér ef þú vilt, það kostar þig ekki krónu.

Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Aðallega geðsjúklingum með mikið sjálfshatur, og lifa fyrir æfingar.

Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness/aflraunir/ kraftlyftingar?

Já það er bara að sumt fólk er að rugla þessu saman, náttúrlega fjarskyldar íþróttagreinar. Mér finnst ágætt að reyna blanda þessu pínu saman, það er að vera sterkur....en samt „look-a“.  Menn þurfa ekkert að vera feitir til að vera sterkir. Menn þurfa ekkert að vera aumir þótt þeir séu með skornar línur.

Hvað þarf til til þess að ná árangri ? Mikla geðveiki til að ná að plata sjálfan sig um að þetta sé ekkert þungt.

Ráð til nýliða: Finndu einhvern sem er sterkari en þú til að æfa með...og hermdu eftir honum, þegar þú ert orðinn sterkari en félagi þinn, þá ferðu á level 2. Finnur enn sterkari og geðveikari náunga til að elta. Annars staðnaru bara og ekkert gerist og treystu mér....það er alltaf einhver sterkari en þú til !

Bestu kjöttölur:

Bekkur: 220

Beygja: 310

Réttstöðulyfta: 360

Hvað ferðu oft á æfingu á dag ? Ég lyfti 4-5 sinnum í viku

Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ? Aldrei sama prógrammið....en oftast allt í botn hehe

Aflraunir

Vestfjarðarvíkingurinn 2010 (Sleit bicep)
5.sæti Sterkasti Maður Á Íslandi 2010

2. sæti Uppsveitavíkingurinn 2009
3. sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2009
3. sæti Austfjarðatröllið 2008
4.sæti Aflraunameistarinn 2008
5.sæti Íslandsmótið í drumbalyftu 2009
2.-3.sæti Grundarfjarðartröllið 2008
5.sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2008
2.sæti Suðurlandströllið 2008
3.sæti Sterkasti Maður Íslands 2008
4.sæti IFSA Sterkasti Maður Íslands 2008
2.sæti Suðurnesjatröllið 2007
2.sæti Uppsveitarvíkingurinn 2007
6.sæti Sterkasti Maður Íslands 2007
1.sæti Grundarfjarðartröllið 2007
2.sæti Suðurlandströllið 2007
4. sæti Hálandaleikarnir 2007
2. sæti Suðurnesjatröllið 2006
3. sæti Uppsveitavíkingurinn 2006
4. sæti Suðurlandströllið 2006
6. sæti Sterkasti Maður Íslands 2006



Síðast uppfært: Miðvikudagur, 01. desember 2010 14:53