Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Páll Logason
175cm - 140kg  - 1986
Páll Logason
Ljósm. Sunna Hlín

Ferill í Aflraunum:

3.sæti Jon Pall Sigmarsson Classic 2011
?.sætiMHP Liberty Strongman Classic 2011

3.sæti
Sterkasti Maður Íslands 2011
7.sæti
Jón Páll Sigmarsson Classic 2010
2.sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2010

4.sæti Sterkasti Maður Íslands 2010

4.sæti Sterkasti Maður Á Íslandi 2010
1.sæti +105kg fl. Íslandsmót AFA í Drumbalyftu 2010
1.sæti Austfjarðatröllið 2009
1.sæti Uppsveitarvíkingurinn 2009
2.sæti Grundafjarðartröllið 2009
2.sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2009
3.sæti Sterkasti Maður Íslands 2009
1.sæti Kraftavíkingurinn 2009
1.sæti Ísl.mót í Rolling Thunder 2009
4.sæti Íslandsmótið í Drumbalyftu (160kg)
5.sæti Austfjarðartröllið 2008
Keppti á World Strongest Nation Úkraínu 2008
2.sæti Aflraunameistarinn 2008
2.-3.sæti Grundarfjarðartröllið 2008
6.sæti Vestfjarðarvíkingurinn 2008
1.sæti Kraftavíkingurinn 2008
2.sæti IFSA Sterkasti Maður Íslands 2008
6.sæti Austfjarðartröllið 2007
6.sæti Vestfjaðarvíkingurinn 2007
5.sæti Kraftavíkingurinn 2007

Kraftlyftingar

Mót
Fl.
HB
BP
RS
Total Wilks
Bikarmót METAL í Kraftlyftingum 2011+140
400
250
375
1025
567,4
Íslandsmót ÍKF METAL í Kraftlyftingum 2011
+140
400
245
360
1005

Íslandsmót WPC í Kraftlyftingum 2011
+140
385
230
365
980
543,2
Fógetamótið 2010
-125

225



Íslandsmót ÍKF-METAL í Kraftlyftingum 2010 (kjöt)
-140
320
240
400
940
?
Íslandsmeistaramót WPC í Bekkpressu 2010
-140

235



Íslandsmeistaramót WPC í Réttstöðulyftu 2010 -140


340


Réttstöðulyftumót RAW 2010
-140


350


Guttormsmótið og Íslansmót Metal í Réttstöðu 2009
-140
220

355


Push and Pull móti WPC 2008 (kjöt)
-140

200
330


Óðinsmót WPC 2008 (kjöt)
-140
320

320


Heimsmeistaramót WPF, Vienna 2008
-140
375
275
350
1000

Ísland vs. Kanda 2008
-140
340
250
320
910

Íslandsmót WPC Bekkpressu 2008


240



Meistaramót WPC 2008
-140
325
245
330
900

Íslandsmeistaramót ÍKF METAL 2008
-140
320
240
320
880

Push & Pull mót WPC 2008
-140

235
300


Íslandsmót ÍKF METAL í Bekkpressu 2008
-125

200



Jólamót Forsetans 2007 (Kjötmót)
-140
280
170
275
725

Grettismót WPC í Hnébeygju & Réttstöðu 2007
-140
280

280


Íslandsmót Unglinga & Öldunga í Kraftlyftingum 2007
-125
-
150
230
-
-

Staður: Grafarvogur, Reykjavík

Æfingastöð: Jakaból og World Class

Æfingafélagi: Ég æfi mest einn en þeir sem rekst oftast inn á æfingu með mér er þá helst konan mín, Stefanía María Arnardóttir sem hefur keppt aðeins í power, og Biggi og Heimir júdó hörkutól.

Atvinna: ég vinn við sölumennsku. Ég starfa hjá Smith & Norland.

Áhugamál: fyrir utan að hafa brennandi áhuga á styrk og líkamsrækt hef ég mikinn áhuga á tónlist og tónlistagerð.

Hvernig kviknaði áhuginn ? Ég var alltaf sem barn mörgum skrefum á undan jafnöldrum mínum í styrk (og er það líka í dag, hehe). Ég byrjaði að mæta í Orkuverið hans Gogga með honum Sindra vini mínum og ætlaði heldur betur að koma mér í form. Svo náttúrulega fann ég fljótt út að það var hundleiðinlegt að hlaupa á bretti eins og hamstur og fann mig gjörsamlega í powerherberginu. Svo skráði ég mig á mót hjá KRAFT án þess að þekkja nokkurn kraftamann eða konu og mætti bara og kunni ekki reglurnar eða neitt. Á þessu móti keppti ég í stuttbuxum og körfuboltaskóm hehe. Þá var ekki aftur snúið...

Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja? Ég átti þannig séð ekki neina fyrirmynd þannig en Jón Páll var náttúrulega þjóðhetjan sem allir elska og dá.


Heimsmeistaramótið í Vín 2008 tók: 375-275-350=1000kg


Hver eru framtíðarplönin ? Planið er að verða fyrstur íslendinga til að taka 1000kg á kjötinu í samanlögðu. Planið er líka að vera í þannig formi þegar ég geri það að ég geti hnyklað vöðvana þess á milli en ekki bara pósa upphandleggs spikið. hehe

Kraftavíkingurinn 2009
Ljósm.Sunna Hlín

Hvernig væri hægt að styrkja kraftlyftingar og aflraunir á Íslandi ? Meiri og jákvæðari umfjöllun í fjölmiðlum. Svo mættu líka líkmsrætarstöðvar frekar ýta undir að fólk styrki sig bæti í stað þess að banna það. Bannað að dedda er heimskulegasta regla sem ég hef heyrt á æfinni.

Uppáhaldsæfing og líkamspartur ? allar æfingar og allar greinar eru uppáhalds. Uppáhalds líkamspartur er bara sennilega rassinn á mér ;) hehe

Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni ? Fyrir kraftlyftingakeppni vill ég fá oftast 8-10 vikur til að fínstilla mig inn á það mót.

Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í kraftlyftingum/aflraunum ? Í kraftlyftingum verður maður oft mjög þungur á sér þegar maður er að æfa fyrir stórmót. Það getur tekið svolítið á í daglegu lífi að vera svona þreyttur. Annars er ekkert sérstaklega erfiðara en annað við aflraunir.

Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Það sem ég nota mest þetta árið er CellMass NT og Nitrix frá BSN, Gold Standard Whey og Casein prótein og Opti-Men fjölvítamín frá ON, og Garbage orkudrykkur. Ef ég dett svo í þyngingar gírinn fer ég í Serious Mass frá ON og True Mass og syntha-6 frá BSN.

Æfingarvikan: (on eða off season): þegar ég æfi kraftlyftingar æfi ég þrisvar í viku. Bara beygjur, bekk og dedd. Þegar ég æfi aflraunir æfi ég aðallega greinarnar sem ég keppi og líka power greinar með en ekki jafn þungt. Þá æfi ég 4-6 sinnum í viku. Þegar ég er í fegrunar prógrami skipti ég æfingum niður eftir vöðvahópum. Þá tek ég t.d. brjóst og upphandlegg á einum degi, læri og kálfar og örðum degi, axlir og upphandlegg á þriðja degi og bak og bumbu á þeim fjórða. Ég æfi 5-6 sinnum í viku og rótera því á hvaða dögum ég æfi hvað. Svo tek ég 20-30mín brennslu eftir æfingar.

Hvað er algengasta spurningin sem þú færð? "Hvenar er næsta keppni?" er sennilega í toppsætinu.



Íslandsmótið í Drumbalyftu 2009
Ljósm.Sunna Hlín


Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Fólki með metnað og veit hvað það er að gera. Einnig er mjög mikilvægt að hafa létt andrúmsloft og góða félaga. Það vantar nú oftast ekki...

Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við aflraunir/kraftlyftingar ? fólk vill oft halda að kraftlyftingamenn séu ólmir í að hjálpa til við að flytja eða bera hluti. Það er hinn mesti misskilningur. Kraftlyftingamenn eru latir upp til hópa og eiga líka erfitt með að halda á léttum hlutum mjög lengi vegna mikillar myndun mjólkursýra í stórum vöðvum.


World Strongest Nation Úkraínu 2008
Ljósm. Einkasafn


Hver eru algengustu byrjendamistökin ? að ætla að gleypa heiminn á einni nóttu. Þetta er tímafrekt og þarf mikla þolinmæði.

Hvað þarf til til þess að ná árangri ? Gott mataræði og góðar æfingar í góðann tíma.

Ráð til nýliða ? Ekki hætta þegar blæs á móti og ekki hætta þó að ekkert sé að gerast alveg strax. Það tekur allt tíma og það sem maður leggur inn í bætingabankann getur maður alltaf tekið út seinna. Fylgist með þeim sem hafa gert þetta á undan þér og lærðu af þeirra mistökum og afrekum. Gangi ykkur vel...




Heimsmeistaramótið í Vín 2008
Ljósm. Sleifur Árnason
 


Síðast uppfært: Föstudagur, 11. nóvember 2011 03:18