Andri Björnsson
191cm - 1985

Ljósm. Sunna Hlín
Aflraunir
Fitness
2.sæti Unglingafl. Fitness Karla Íslandsmót IFBB 2005

Viðtal fyrir Bikarmót í Vaxtarrækt IFBB 2010
Nú ertu bara búinn að keppa í Aflraunum í sumar (2010) var ekki erfitt að skipta um æfingarstíl og matarræði ?
Það var ekki mikið mál að skipta um æfingastíl þar sem ég er að æfa mjög svipað og ég hef alltaf gert en helstu breytingarnar eru þær að núnarer ég að lyfta í fleiri endurtekningum og er ekki að lyfta jafn þungt og ég var að gera, svo er ég ekki að æfa aflraunagreinarnar reglulega eins og ég gerði í sumar. Ég tek líka meira af æfingum sem einangra vöðvana betur og einbeiti mér meira að veikum punktum svo sem kálfum og öxlum, matarræðið er samt miklu erfiðara þar sem ég fer úr því að borða eins mikið og ég get í hvert mál til að þyngjast sem mest og beint í cutt fæði á stuttum tíma.
Hvað ertu að taka langan niðurskurð fyrir þetta mót (Bikarmót 2010)?
Ég tek 11 vikur þar sem ég ákvað ekki að keppa fyrr en þá hehe. annars hefði ég tekið 12 vikur en þetta sleppur alveg.
Hvernig er matarprógrammið ?
Matarræðið hjá mér er ekkert flókið, oftast er byrjar dagurinn hjá mér kl 7:30 á 70gr af haframjöli með 40gr mysupróteini frá ON + 2 hylki af CLA frá Optimum Nutrition og eitt skot af jen fe. kl 9:30 eru það 3 heil egg, 2 kubbar af weatabix og smá fjörmjólk + 24gr mysuprótein frá Optimum Nutrition. kl 12:00 250-300gr kjúklingur, fiskur eða eithvað kjöt og svo eitthvað af hrísgrjónum eða sætum kartöflum. kl 15:20 þetta er máltíðin sem ég fæ mér klukkutíma fyrir æfingu og hún er alveig eins og morgunmaturinn. strax eftir æfingu um kl 18:30 þá fæ ég mér cellmass kreatín frá BSN (besta kreatín sem ég hef notað) 20 min seinna eru það 48gr af optimum whey próteini + einn banani. kl 20:00 eins og hádegismaturinn + 2 CLA hylki. svo á kvöldin fæ ég mér kannski ávexti ef ég er alveg að farast úr hungri en fyrir svefninn fæ ég mér alltaf 24gr af 100% caisen próteini frá ON. Einnig nota ég NITRIX frá BSN sem gefur mér alveg rosalega mikið pump og úthald á æfingum, ég tek 4 töflur 3 x á dag 30min fyrir máltíð.
Æfingarvikan fyrir þetta mót ?
Mánudagur: Framanverð læri og kálfar.
Þriðjudagur: Bak.
Miðvikudagur: Brjóst og bísep.
Fimmtudagur: Aftanverð læri og kálfar.
Föstudagur: Axlir og trisep.
Svo ef ég fer á æfingu á laugardögum þá tek ég kvið, kálfa og kannski eitthvað sem ég átti eftir og svo brenni ég 2-3 svar í viku á morgnana á tóman maga og tek kvið líka með.
Hvar ertu að æfa og með hverjum?
Ég er að æfa niðrí World Class Laugum og æfingafélagarnir eru Maggi Sam, Anton, Ingi og Húni en við erum allir að fara keppa í vaxtarrækt þannig að það skapast svakalegur andi á æfingum sem er bara gott ;)
Nú eru komin 5 ár síðan þú kepptir síðast og þá í unglingaflokki fitness einhver ástæða fyrir þessari löngu pásu ?
Ég ætlaði að keppa um páskana 2008 en ég lenti illa í veikindum rétt fyrir mót og varð að hætta við. Ég ætlaði alls ekki að keppa á þessu móti heldur bara hvíla vel í haust en það voru bara svo margir að fara keppa og þetta verður líka svo flott mót að ég lét til leiðast sem ég er reyndar mjög feginn núna að hafa gert.
Atvinna?
Ég er að vinna sem vélvirki hjá Vögnum og þjónustu sem er fjölskyldufyrirtæki og hef ég unnið þar síðan ég var 14 ára gamall.
Áhugamál?
Fyrir utan lyftingar þá hehe. Ég hef mikin áhuga á jeppum og öllu sem viðkemur þeim, einnig á ég fjórhjól sem mér finnst mjög gaman að leika mér á, ég er líka með mikinn áhuga á ferðalögum um hálendi Íslands og öllu því sem þetta fábæra land hefur uppá að bjóða sem við kemur náttúru og fegurð, er líka mikill útilegumaður.
Hvernig kviknaði áhuginn?
Þegar ég var 16 ára þá bakbrotnaði ég í vélsleðaslysi og uppúr því byrjaði ég í sjúkraþjálfun og þar kviknaði áhuginn á lyftingum.
Fyrirmyndir í vaxtarrækt ?
Arnold Schwarzenegger og Magnús Bess
Hvernig væri hægt að styrkja fitness og vaxtarrækt á Íslandi ?
Með því að halda flott mót hérna á klakanum eins og Hjalti er að gera með Icelandic Health and Fitness Expo.
Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness?
Að fólk þurfi að svelta sig þegar það er að undirbúa mót og svo finnst mörgum skrítið að maður sé að spá svona mikið í útlitinu en nær ekki að að setja það í samhengi við annað sport, svo sem golf þar sem fólk er kannski inná skrifstofunni sinni að æfa golfsveifluna, það er ekkert skrítið! en það væri fáránlegt að vera æfa pósurútínuna á skrifstofunni hehe, eða er það eithvað öðruvísi? Held ekki!
Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ?
Hvað ég sé þungur, hvað ég sé búin að æfa lengi og hvað ég sé oft að lyfta í viku.