Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 08. desember 2009 13:21

Alfreð Pálsson með Come Back !

Alfreð Pálsson
Íslandsmót IFBB 2007
Ljósm. Einar Guðmann - Fitness.is


Alfreð Pálsson hefur keppt 5 sinnum í vaxtarrækt á 10 ára tímabili en hefur nú ekkert sést í tæp 3 ár. Nú hefur hann hafið undirbúning fyrir Íslandsmót IFBB sem haldið verður um páskana.

Nú sá ég þig í Laugum um daginn og varstu orðinn helbreiður hvað ertu eiginlega þungur ?

Ég er að sveiflast frá 107-109kg núna og er í mínu þyngsta formi miðað við fituhlutfall.

Þú hlítur þá að vera kominn upp úr -90kg flokki ?

Ég hef alltaf keppt í -90kg flokki og stefni á -100kg flokk núna. Ég er þó ekkert mikið að stressa mig á hvar ég enda í þyngd, bara láta form og útlit ráða. Mæta bara í mínu allra besta formi :-)

 

 Smellið á nánar til að sjá allt viðtalið

 

 

Þau mótvaxtarræktarmót sem ég hef keppt á eru:

3.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 1997
3.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 1998
2.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 2005
1.sæti -90kg fl Íslandsmót IFBB 2005
6.sæti -90kg fl Grand Prix Oslo 2007

 

Nú leið langur tími 1998-2005 þar sem þú kepptir ekkert. Var einhver sérstök ástæða fyrir því?
Alfred Pálsson
Íslandsmót IFBB 2005

Ljósm. Myndrún - Fitness.is

Aðal ástæðan var sú að ég fór í skóla í millitíðinni og var eginlega hættur að spá í keppnir. Svo var ákveðið að halda Íslandsmótið á Akureyri og Sigurður Gestsson hvatti mig mikið til að vera með þá þar sem ég bjó á Akureyri. Í kjölfarið af því fór ég að herða æfingar og við það að taka þátt í þessu móti rifjaðist upp fyrir mér hversu gaman þetta er og allt í kringum þetta.

Síðasta mót sem þú kepptir á var bekkpressumót. Hvernig gekk þar ?

Ég tekið þátt í einhverjum kraftlyftingamótum og núna síðast í fyrra a Gamlársmóti KFA, þar sem bara er keppt í bekkpressu. Tók 222,5 kg.

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 08. desember 2009 14:16