Senda í tölvupóst

Svavar Már Einarsson

31 árs - 174cm

Svavar Már Einarsson
Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net

Ferill:
1.sæti Unglingafl Vaxtarrækt 1995
1.sæti Unglingafl Vaxtarrækt 1996
1.sæti Unglingafl Vaxtarrækt 1997
2.sæti Vaxtarækt Bikarmóti IFBB 2006
1.sæti Vaxtarrækt Bikarmóti IFBB 2007
Overall Bikarmóti IFBB 2007

Off-season þyngd: 101 kg

Keppnisþyngd: 90kg

Styrktaraðilar: Nings og World Class

Staður: Reykjavík

Æfingarstöð: World Class

Atvinna: Einkaþjálfari í World Class Laugum

Áhugamál: Vaxtarrækt. flottir bílar, utanlandsferðir og góðar bíómyndir

Hvernig kviknaði áhuginn á vaxtarræktinni ?
Komst í líkamsræktarblöð eins og Flex og Muscle and Fitness. Sá þar hellvöðvaða kalla og vissi strax að ég vildi verða svoleiðis. það eru 20 ár síðan og hef ekki misst úr nema 2 vikur á öllum þessum tíma, ég get ekki verið án þess að lyfta lóðum, ástin kviknaði strax. Lóðin eru alltaf þarna, fara hvergi og svikja aldrei. Þessi íþrótt byggist á vilja og aga hjá manni sjálfum og það er engum öðrum að kenna ef eitthvað fer úrskeiðis.

Svavar Már Einarsson
Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net

Ég sá fyrsta mótið í vaxtarrækt held ég 1992. Þetta var allavegana fyrsta skiptið sem Maggi vann. Þarna vissi ég að þetta væri eitthvað sem ég vildi prófa. Þegar tónlistin og pósurnar byrjuðu fékk ég gæsahúð og byrjaði að svitna.  Mér fannst þessir kallar Maggi, Kjarri, Gummi Marteins, Gummi Braga og Ívar Hauks vera flottari en kvikmyndstjörnur frá Hollywood, að vera svona var bara það svalasta.


Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja í vaxtarrækt ?
Fyrirmyndir eða menn sem ég leit upp til hér heima voru Jón Páll, Gummi Braga og Maggi  Bess, alþjóðlega voru það Arnold og Tom Platz, Lee Labrada og Shawn Rey.

Hver eru framtíðarplönin ? 
Lengra fram í tímann: mennta mig meira, fá góða vinnu og stofna fjölskyldu og halda áfram að æfa að sjálfsögðu.

Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt/fitness á Íslandi ?
Fá fleiri styrktaraðila og meiri umfjöllun.

Uppáhalds æfing og líkamspartur ?
Sennilega hnébeygjur en mér finnst hinsvegar skemmilegast að æfa kassann og handleggi.

Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni ?
12 vikur

Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í vaxtarrækt/fitness ?
Seinustu þrír dagarnir fyrir mót en það verður í lagi núna þvi félagi minn ætlar að hjálpa mér með þá og er því sæmilega rólegur.

Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ?
Próteinduft og carboloader eftir æfingar.

Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við vaxtarrækt/fitness?
Að þetta sé óhollt.

Hver eru algengustu byrjendamistökin ?
Lyfta of þungt með lélegu formi og hlúa ekki nógu vel að mataræði og hvíld.

Hvað þarf til til þess að ná árangri ?
Mjög mikinn áhuga og aga.

Ráð til nýliða í vaxtarrækt ?
Lesa sér til og tala við þá sem hafa mikla reynslu