|
Júlíus Þór Sigurjónsson 164cm - 18.febrúar 1981
 Ljósm.Fitness.is Vaxtarrækt
Þyngd: Offseason 85 kg Onseason: Á eftir að koma í ljós á Bikarmótinu.
Styrktaraðilar: Perform.is (aðeins það besta) Staður: Kópavogur Æfingastöð: World Class Laugum Atvinna ? Grunnskólakennari Áhugamál ? Knattspyrnugláp og öll sú heimspeki sem tengist því. Matargerð og allt sem tengist hreyfingu og heilsu. Hvernig byrjaði þetta allt saman ? Byrjaði að lyfta samhliða körfunni en þegar ég hætti í henni tóki lyftingar alfarið yfir. Vildi bara prufa að keppa og svo var eiginlega ekki aftur snúið. Ætlarðu að keppa aftur ? Mun keppa á Icelandic Expo. Maður má ekki láta þetta framhjá sér fara!!! Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarrækt á Íslandi ? Auglýsa betur og fá fleiri styrktaraðila. Betri verðlaun til að draga nýliði að. Maður bindur svolitla von um að Hjalti (ásamt IFBB) nái að rífa sportið upp með þessu móti sem verður 19-21.nóv.
Uppáhaldsæfing og líkamspartur ? Fótapressa – fætur og bak
Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni ? Misjafnt en ekki minna en 8 vikur í skurð.
Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í vaxtarrækt ? Leiðist brennslan alveg hrikalega og svo finnst mér nú ekkert alltof spennandi að lengi á „Cuttfæðinu“ ;)
Æfingarvikan: (on eða off season) Onseason: þá æfi ég 6 sinnum í viku. Offseason: 3-4 sinnum.
Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Hvað tekuru í bekk!!!
Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Fólki sem hefur metnað og helst einhver sem ég þarf að halda í við.
Hver eru algengustu byrjendamistökin ? Byrja of hratt og of há markmið á stuttum tíma.
Hvað þarf til til þess að ná árangri ? Þolinmæði og dugnað.
Ráð til nýliða ? „Róm var ekki reist á einum degi“ Árangur í ræktinni fæst ekki með skyndilausnum heldur með stöðugri vinnu, góðu matarræði og fyrsta flokks bætiefnum.
|