Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Gauti Már hefur keppt í vaxtarrækt síðan árið 1994 en hann byrjaði að æfa 14 ára gamall. "Ég byrjaði að fa árið 1987 þá 14 ára. Ástæðan ? Ætli það hafi ekki bara verið áhuginn á sportinu og svo var maður náttúrulega að æfa fyrst um sinn hjá goðsögninni honum Sigurði Gestsyni. Mig rámar nú eitthvað í að hann hafi verið að hvetja mann áfram."


1.sæti -80kg fl Íslandsmótið 1997 
Ljósm. Einkasafn


Hvernig var að kötta á þessum tíma, þegar þú varst að byrja ? hvað var helst verið að borða og hvað finnst þér vera frábrugnara því sem gert er í dag ?

Ég man að fyrir fyrsta mótið mitt 1994, þá var ég að borða allt of lítið. Mér var hel-kalt allann sólarhringinn og alveg orkulaus. En svo eftir því sem maður gerir þetta oftar þá lærir maður hvað og hvernig maður þarf að borða til að manni líði vel á köttinu.

Þá var náttúrlega töluvert minni þekking aðgengileg, það var ekkert stokkið til og Googlað eftir upplýsingum. Ég man nú ekki nákvæmlega hvað ég var að borða á þeim tíma en það var örugglega kjúklingur, fiskur, skyr, grænmeti og hrísgrjón. Á þessum tíma var töluverð fitu-fóbía í gangi þ.e. margir reyndu að hafa sem minnst af henni í fæðunni, allavega undir 10%. En í dag er maður með hlutfallið í kringum 30%.

Hver voru þín byrjendamistök ?

Mín byrjendamistök? Úff það er svo langt síðan. Ætli það hafi ekki bara verið að vera alltaf að eltast við einhverjar töfra formúlur hvað varðar æfingar sem maður las um í vaxtarræktarblöðunum á þessum tíma.

Hvaða brúnkukrem voru notuð þegar þú varst fyrst að byrja ?

Hahaha :) það var Clarins brúnkukrem. Þó nokkrum tónum ljósara en verið er að nota í dag.

Hvað er annars að frétta ?

Það er bara allt gott að frétta héðan úr firðinum (Ólafsfirði) ég er að kötta þessa dagana. Undirbúningurinn hófst 7 vikum fyrir mót því þá var ég alveg ákveðinn í að keppa en ég var í svona semi-kötti tvær vikur þar á undan. Ég æfi einu sinni á dag, vanalega 5 daga í viku og er að æfa einn í Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar.


Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar núna svona stuttu fyrir mót ?

Ég lyfti þungt allt árið um kring, þ.e. er mest í 4-6 repsum. Ég trúi að aðferðin sem maður notaði til að massa sig upp sé einnig heppilegust til að halda massanum á köttinu.

Hvernig gengur með Pose - rútínuna ?

Uuuuu.....hún er í vinnslu :)


Gauti Már Íslandsmótið 2005
Ljósm. Myndrún, fitness.is


Hvernig er matarprógrammið ?

Ég nota Carb-Cykling aðferðina, hún virkar mjög vel á mig. Hún byggist upp á að rótera kolvetnunum og tímasetja inntöku þeirra á sérstakann hátt.

Hvaða fæðubótarefni notarðu ?

Ég nota fæðubótaefni frá Sci-MX: 100% Whey, Pureprotein GRS, CLA, Creatín og Pyro-MX. Einnig nota ég Vitargo Carboloader.

Einhverjir styrktaraðilar ?

Já, Líkami og Lífsstíll eða Sci-MX. Og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka þeim kærlega fyrir stuðninginn undanfarið.

Hver er helsti munurinn á þér síðan á Íslandsmótinu um páskana ? 

Hmm, ég veit það nú ekki. Þegar maður er búinn að vera æfa þetta lengi,  þá held ég að maður sé nú ekki að taka nein risa stökk hvað varðar form á svo stuttum tíma.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 27. október 2010 16:40