Uppfærsla á Prófíll: Magnús Samúelsson Íslandsmót IFBB 2009 Ljósm.Sunna Hlín
|
Nafn: Magnús Samúelsson Aldur: 32 Búseta: Garðabær Atvinna: Einkaþjálfun, fjarþjálfun og Pípari Hæð: 173 Off-season þyngd: 107 kg Keppnisþyngd: Stefni á 97kg á Íslandsmótinu 2010. Var 87kg á sviði á Íslandmótinu 2009 Hjúskaparstaða: Í sambandi með Olgu Ósk Ellertsdóttur Ég er fæddur og uppalinn í Garðabæ, og hef búið nánast alla mína ævi þar. Ég er í sambúð með Olgu Ósk og saman eigum við 2 hunda þá Cezar og Maximus. Ég byrjaði að keppa í Vaxtarrækt árið 1997 og keppti til ársins 2003 og tók mér þá pásu í nokkur ár og fór að keppa í motorcross. Árið 2009 byrjaði aftur að keppa í Vaxtarrækt og varð þá Íslandmeistari í -90kg flokki. Áhugamál mín fyrir utan vaxtarækt eru motorcross, motorhjól og að sjálfsögðu Rottwiler hundarnir mínir Maximus og Cezar
Hvenær hefst köttið fyrir Íslandsmótið 2010 ? Ég byrjaði að skera niður 12 vikum fyrir mót. Ég ætla svo að keppa 10.apríl á Grand Prix Reykjavík. Þann 17.apríl er Grand Prix Osló og svo 24.apríl er Grand Prix Svíþjóð. En þá verð ég búin að vera skera niður í 16 vikur. Skiptirðu eitthvað um matarprógram á tímabilinu ? Nei reyni að hafa matarræðið mjög svipað allan tímann nema að ég hef nammidag á laugadögum. Hvað var fituprósentan þegar þú byrjaðir ? Mæli aldrei fituprósentuna. Hvar ertu að æfa ? Super Gym og World Class Laugum Hvað ferðu oft á æfingu á dag og með hverjum æfirðu ? Lyfti 4-5 sinnum í viku off-season og ég lyfti 5-6 sinnum í viku fyir mót og tek brennslu um 4-5 sinnum í viku. Er að æfa með Antoni Rúnarssyni. Hvaða aðferð notarðu við lyftingarnar ? 6-10 reps off season, 12-15 reps fyrir mót Hefur köttið einhver áhrif á fjölskylduna ? Já það geri það að einhverju leiti. Til dæmis ef það eru veislur eða matarboð.
Hver er helsti munurinn á þér frá síðasta móti ? Þyngri og köttaðri
Hvernig kviknaði áhuginn? Ég var alltaf mjög grannur þegar ég var yngri og langaði að bæta á mig smá vöðvamassa, en var aldrei að fara keppa í þessu sporti á þeim tíma Hvenær byrjaðir þú að æfa? Byrjaði um 18 ára gamall  Ljósm.Einkasafn
|
Varstu strax heillaður að vaxtarræktinni ? Já eftir eg vann í fyrsta skipti árið 1997 sem ég keppti, þá var ekki aftur snúið eftir það. Hver var helsta átrúnaðargoðið þitt þegar þú varst að byrja í vaxtarrækt ? Maggi Bess og Gummi Braga á þeim tima. En mig langaði alltaf að vera eins og Shawn Ray. Mer fannst hann alltaf flottur. Tölur í power ? Á best 210kg í bekk, 260kg x 5 sinnum í beygju og 250kg x 5 sinnum í réttstöðu. Langar að bæta þetta með tímanum.
Hvernig væri hægt að styrkja vaxtarræktina á Íslandi ? Fá fleiri sponsera til að styrkja á mótum. Fleiri verðlaun, t.d. penninga verðlaun, reyna komast meira í fjölmiðla t.d. sýna mótin í sjónvarpi, skrifa meira um sportið á netsíðum. Uppáhaldsæfing og líkamspartur ? Bekkur, hnébeygja, Róður með handlóðum. Uppáhalds likamspartur, Bak og fætur Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í vaxtarrækt ? Morgunbrennslan. Finnst það leiðinlegast af öllu. En geri það þó samt, hehe |  Ljósm. LoadedCup.com
|
Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Hvað ert þú að taka í bekk ? Hvaða heimasíður skoðaru mest ? vodvafikn.net og MaggiSam.is Hvað drífur þig áfram ? Að verða betri og betri með timanum. Hvaða líkamspart ertu ánægðastur með ? Fætur og bak Ráðleggingar til nýliða ? Vera þolimóðir, búa sér til plan og reyna halda sér við það. Hverjir eru kostir og gallar sportsins ? Góður lífstíll og skemmtilegt sport en getur verið tímafrekt fyrir mót Hvernig er venjulegur dagur í lífi þínu ? - Off-season: Út með hundana, þjálfa, vinna í tölvunni (fjarþjálfun). Borða eins oft og ég get, lyfta í einn og hálfan tíma, fara út með hundana og svo kúra hjá Olgu :) - Fyrir mót: Vakna og tek brennslu, borða, útrétta smá, borða, lyfta, borða, fer í ljós, fer í Ultratone, borða, slappa af og fer snemma að sofa. Hvaða fæðubótarefni notarðu helst ? Ég nota Maximuscle frá Hreysti, í niðurskurðinum nota ég Promax hreint protein, Creatamax creatin, Glutamax AKG Cutting Edge, CLA-1000, Thermobol Diet brennslutöflur. Svo offseason nota eg þa mikið Maximuscle progain Extreme, Viper Energy & Recovery Professional Hyper Mass 6000. Sponserar ? Betra Bak, Hreysti, Ultratone,Bk kjúklingur, Super Gym, Nings, Hámark próteindrykkur og Stjörnusól. Hver eru markmið þín ? Að reyna vinna mótin sem eg tek þátt í árið 2010 og halda áfram að þyngast og bæta mig sem keppanda og sem manneskja. Ráðleggingar til nýliða ? Vera þolimóður, Búa sér til plan og reyna halda sér við það. Fá ráðleggingar frá einverjum sem hefur gert þetta og veit hvað hann er að tala um.  Ljósm.LoadedCup.com
5.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Loaded Cup 2009 1.sæti 90kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót IFBB 2009 1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót 2003 1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót 2002 OVerall Vaxtarrækt Íslandsmót 2002 2.sæti Kvöld Meistaranna 2001 3.sæti -90kg fl Vaxtarrækt "Norðurlandamót" 2001 Alþjóðlegt Vaxtarræktarmót í Hollandi 2001 1.sæti -90kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót 2000 1.sæti-80kg fl Vaxtarrækt Íslandsmót 1999 1.sæti -80kg Unglingafl. Vaxtarrækt Íslandsmót 1998 Overall Unglingaflokki Vaxtarrækt Íslandsmót 1998 1.sæti -70kg fl Unglinga Vaxtarrækt Íslandsmót 1997 |
|