Rósa Björg Guðlaugsdóttir


WBFF 2011
Ljósm. Adam Jónsson
2.sæti Figure Evrópumót WBFF 2011 (Iceland) 1.sæti +35ára fl. Fitness Evrópumót WBFF 2011 (Iceland) 4.sæti +164cm fl. Fitness Bikarmót IFBB 2009 2.sæti Íslandsmót IFBB 2009, fitness kvenna +35 ára 3.sæti Íslandsmót IFBB 2009, fitness kvenna 3.sæti Bikarmót IFBB 2008 7.sæti Norðurlandamót 2008 1.sæti Intersport fitnessþraut, 2008 9.sæti Oslo Grand Prix 2008 3.sæti Íslandsmót IFBB 2008, fitness kvenna +35 ára 2.sæti Íslandsmót IFBB 2008, fitness kvenna 2.sæti Bikarmót IFBB 2007, fitness kvenna 3.sæti Íslandsmót IFBB 2007, fitness kvenna +35 ára 2.sæti Íslandsmót IFBB 2007, fitness kvenna 4.sæti Bikarmót IFBB 2006 3.sæti Icefitness 2006 3.sæti Þrekmeistari 2004 5-8 sæti Icefitness 2004
|
  Bikarmót IFBB 2009 Ljósm. Sunna Hlín |
Aldur: 15.september 1971
Hæð: 168
Off-season þyngd og keppnisþyngd ? off – 63kg keppnis 60kg
Styrktaraðilar: Sci-mx, Saffran, Trimform Berglindar, Ibiza Sólbaðstofa, Arteco snyrtivörur
Staður: Kópavogur
Æfingastöð: Sporthúsið
Æfingafélagi: Þjálfari og sambýlismaður, Elmar Freyr Elíasson einkaþjálfari
Atvinna : Leiðbeinandi í Curves
Áhugamál : Líkamsrækt hefur allann minn hug.
Hvernig kviknaði áhuginn? Ég sá icefitness 2003 og varð spennt fyrir sportinu. Prufaði árið eftir og fannst ofboðslega gaman. Síðan kynntist ég Elmari og hann hjálpaði mér að taka þetta alvarlega og ná árangri eftir því.
Hvenær byrjaðir þú að æfa og Varstu strax heillaður að sportinu ? Ég byrjaði að æfa að alvöru helgina sem ég sá íslandsmótið fyrir norðan árið 2006, mér fannst þetta svo spennandi og þrautin heillaði mig svo mikið. Þá var ég fyrir norðan með karlinum, ég sagðist vilja prufa þetta almennilega og síðan hef ég ekki stoppað.
Hver var helsta fyrirmynd þín þegar þú varst að byrja í fitness? Engin sérstök, ég hef alltaf bara barist við að gera mig betri og betri.
En í dag ? Alltaf þær sem eru fremstar hverju sinni.
Hver eru framtíðarplönin ? Vinna til efstu verðlauna hérna heima og úti.
Hvernig væri hægt að styrkja fitness/vaxtarrækt á Íslandi ? Fá áhugasama einstaklinga sem vilja og hafa tíma til að gera sportið stærra hérna heima. Það er vel hægt ef menn hafa metnað.
Uppáhalds æfing og líkamspartur ? Axlir og bak.
Hvað áttu í bekkpressu ? 3x 60
Hvað tekurðu langan tíma í undirbúning fyrir keppni? Núna síðast (fyrir Bikarmótið 2009) 11 vikur. Hef venjulega tekið 8vikur en þjálfarinn ákvað að prufa þetta. Það er að skila sér.
Hvað finnst þér erfiðast við að keppa í fitness ? Að ná þeim vöðvamassa sem þarf til að ná fullkominu útliti
Hvaða fæðubótaefni notarðu helst ? Fæðubótaefni í uppáhaldi: Sci-mx hjá Bjössa. Ekki spurning. Hef notað þau síðan ég byrjaði og ég á þeim efnum allan næringarlega árangur að þakka.
Æfingarvikan: fyrir þetta mót Brennsla 7daga vikunnar, lyfta ég er að skera niður. Ég bara borða rétt.
Hver eru algengustu byrjendamistökin ? að borða of lítið. Þú 5daga vikunnar + 1x Þungt á kvið.
Hvað er algengasta spurningin sem þú færð ? Hvernig nenniru að standa í þessu.
Hvernig fólki finnst þér best að æfa með ? Manninum mínum.
Hver finnst þér vera algengasti misskilningurinn við fitnessið ? Að þú þurfir að svelta til að verða flott. Ég vinn með konur alla daga og undantekningarlaust er ég að borða oftar á dag en þær. Í flestum tilfellum borða ég meira af hitaeiningum en þær.
Hvað þarf til til þess að ná árangri ? Nýta sér þekkingu þeirra sem kunna þetta. Ef þú kannt þetta ekki upp á 10 sjálf, ekki fara í 10 þjálfara og fá ráð. Finndu út hverjum þú treystir til að gera þig að því sem þú vilt og fylgdu honum. Þjálfarar eru misjafnir eins og þeir eru margir. Einbeittu þér af því sem þú ert að gera. Ef þú ætlar að keppa og verða best, þá þarftu að vera með þig og fitness í forgangi og í hausnum alla daga. Hver æfing og hver dagur skiptir máli.
Ráð til nýliða ? Vertu viss um að þú ætlir þér að keppa, þetta er erfitt, langt og strangt prógram, sú eina sem getur gert þetta ert þú. „Þú æfir, þú setur ofan í þig næringu, þú velur þér þjálfara til að fara eftir. Taktu þetta alvarlega alltan tímann“