|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Kristján Geir Jóhannesson 183cm - 29.sept 1973
  Ljósm. Treningsforum Fitness & Vaxtarrækt
  Íslandsmót IFBB 2010 Ljósm. Sunna Hlín
Þyngd off seasson: 88kg-90kg Keppnisþyngd: 86kg-87kg Styrktaraðilar: Tanið, EAS, Mítsú snyrtistofa Æfingarstöð: World Class, Laugar. Æfingarfélagar: Davíð og Freyr. Áhugamál: Líkamsrækt, útivera og skotveiði. Er líka mikill sveitamaður.
Hvenær kviknaði áhuginn: Áhuginn kviknaði þegar ég horfði á vaxtarrækt með Jóni Páli kringum 1983 og blúnaði alltaf í mér síðan þá hef verið að lyfta með hléum allt frá 14 ára aldri en svo kringum 2007 fór ég á bikarmót og ákvað þá að taka þátt og get ekki hætt.
Helsta fyrirmynd í dag: Jay cotler Plön með fitnessið: Planið er að komast erlendis og keppa þar. Hvernig væri hægt að styrka fitness og vaxtarrækt á Íslandi ? Ekkert mál að styrkja þessar greinar með meiri umfjöllun og auglýsa mót betur og auðvitað hjálpa þeim sem vinna mót að komast út og keppa þar ef þeir hafa áhuga og vera með verðlaun ekki bara gamalt páskaegg. Uppáhaldsæfing: Bak og fætur. Hvað tekurðu langann undirbúning fyrir mót ? Undibúningur fyrir keppni er allt árið. Cutt í 12 til 15 vikur. Hvað finnst þér erfiðast við að keppa ? Erfiðast er vatnslosun fyrir keppni.
Æfingarvikan off season Mánudagar Bak Þriðjudagar Brjóst. Miðvikudagar Hamur og kálfar. Fimmtudagar beecep og treecep. Föstudagar frí stundum brensla. Laugardagar Fætur framan og kálfar. Sunnudagar axlir. Fyrir keppni Brennsla og létt pump alla morgna lyfta þungt seinnipart
Algengasti misskilingurinn við sportið: er að þetta sé erfitt og óhollt Algengustu byrjendamistökin: eru að lyfta of þungt og ekki réttar hreyfingar fyrir þann vöðva sem ætlunin er að þjálfa. Hvað þarf til að ná árangri ? Þolinmæði og skipulag. Ráð til nýliða ? Ekki reyna finna upp hjólið það er búið að finna það. Fá ráð hjá reyndari mönnum og einkaþjálfurum.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 01:23 |