Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ragga Nagli   
Þriðjudagur, 30. september 2008 00:00

Breytt matarræði = Betra líf


Það er engin tilviljun að af þeim sem Naglinn hefur aðstoðað með að breyta útliti líkama síns, að þeir sem hafa náð lang bestum árangri eru þeir sem hafa breytt mataræði sínu til hins betra. Hið sama gildir um þá fjölmörgu sem Naglinn hefur lesið um í tímaritum og á netinu og hafa náð eftirtektarverðum árangri.

Undantekningarlaust hefur þetta fólk náð markmiðum sínum með skotheldu mataræði í bland við gott æfingaprógramm. Það er alltof hátt hlutfall af ræktarmeðlimum sem halda að allt snúist um æfingar. Þetta fólk mætir samviskusamlega dag eftir dag og ár eftir ár en skrokkurinn breytist ekkert.

Þegar markmiðið er að breyta líkama sínum er vissulega mikilvægt að æfa en rétt mataræði er samt sem áður mikilvægasta breytan. Hægt er að skipta mataræði og hreyfingu upp í hlutfall af árangri, þar sem mataræðið skiptir 80% máli og hreyfingin 20%.

Þú ert ekki að gera heilsunni, þrekinu og útlitinu neinn greiða með því að troða óhollustu í þig 2-3 daga í viku. Það er vonlaust að ætla að bæta fyrir slíkar átveislur með hreyfingu.

 

Alltof margir telja sig borða hollt en lauma upp í sig kexkökum og súkkulaðimolum í kaffitímanum og þamba gos á kvöldin. Lítið nart + lítið nart er fljótt að safnast saman og verða að stórri hindrun fyrir árangur. Hinir sömu eru svo jafnvel að sleppa sér um helgar í sukkinu.


Það segir enginn að þú þurfir að japla á brokkolí allan ársins hring til að vera “fitt” og hraustur. Við þurfum öll okkar pizzu og súkkulaði af og til og það er í góðu lagi að leyfa sér slíkt. En það er ekki lengur hægt að tala um munað, þegar slíkur matur er farinn að teygja sig langt út fyrir 1-2 máltíðir á viku. Þegar jafnvel heilu dagarnir orðnir undirlagðir af sukki þá er það ekki vigtin sem er með mótþróaþrjóskuröskun heldur eru það matarvenjurnar sem eru Þrándur í götu okkar fyrir fitutap og/eða vöðvastækkun.

Það er vissulega hægt að halda sér í skefjum með því að æfa en þegar markmiðið er að breyta útliti sínu, hvort sem það er að minnka fitu og/eða bæta á sig vöðvum, er ekki nóg að mæta bara í ræktina, við verðum líka að standa okkur í stykkinu við


Kveðja
Ragga Nagli