|
Skrifað af: Ragga Nagli
|
|
Fimmtudagur, 18. september 2008 00:00 |
Mysuprótín Toppar listann yfir vöðvabyggjandi bætiefni því það er mikilvægast í myndun prótína í líkamanum. Mysuprótín er mjólkurprótín sem hefur hátt hlutfall BCAA amínósýra. Mysuprótín frásogast hratt og skilar sér því hratt til vöðvanna til að byggja þá upp. Mysuprótín innihalda einnig peptíð (lítil prótín) sem auka blóðflæði til vöðva. Þess vegna er mælt með að fá sér mysuprótín strax að lokinni æfingu. Hvernig má hámarka áhrif þess? Taktu 20gr af mysuprótíni fyrir æfingu og 40gr innan 60 mínútna eftir æfingu. Einnig má hafa í huga að taka 20gr af mysuprótíni um leið og maður vaknar til að hefja strax vöðvastækkun.
|