Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 23. júlí 2008 00:00

Kreatín

Grein eftir Röggu Nagla

Kreatín: Kreatín er myndað úr þremur amínósýrum: arginine, glycine, methionine. Vísindalegar rannsóknir sýna að þeir sem taka kreatín bæta á sig vöðvamassa og bæta styrkinn svo um munar. Kreatín virkar á marga vegu. Í fyrsta lagi eykur það magn skjótrar orku í vöðvunum sem þarf til að framkvæma endurtekningar í lyftingum. Því meira sem er til staðar af þessari skjótu orku því fleiri endurtekningar er hægt að gera með ákveðinni þyngd. Það leiðir til að við verðum stærri og sterkari með tímanum. Kreatín dregur líka meira vatn inn í vöðvafrumur, sem teygir á þeim og það stuðlar að auknum langtíma vöðvavexti. Nýlega hafa niðurstöður rannsókna sýnt að kreatín eykur hlutfall af IGF-I (insulinlike-growth factor) í vöðvum sem er mikilvægt fyrir vöðvavöxt.

Hvernig má hámarka áhrif þess? Taktu 2-5gr af kreatíni með prótín sjeik fyrir æfingu. Þetta hjálpar til að halda vöðvunum mettuðum af kreatíni og framleiðir skjóta orku sem er nauðsynleg til að klára fleiri endurtekningar. Síðan skaltu taka 2-5gr með prótín sjeiknum eftir æfingu, því þá sjúga vöðvarnir kreatíníð hratt til sín. Á hvíldardögum skaltu taka 2-5gr með morgunmatnum.